Heimilisritið - 01.06.1946, Blaðsíða 63
Myrna Loy, sem kjörin hefur ver-
ið „hin sanna eiginkona í kvikmynd-
um“, er skilin við mann sinn, Gene
Markey kvikmyndaframleiðanda. —
Myma er 40 ára, rauðhærð og lag-
leg, og hefur tvisvar verið gift áður.
Markey hafði áður verið kvæntur
kvikmyndastjörnunum Joan Benn-
ett og Hedy Lamarr.
Benny Goodman fer með hljómsveit
sína til Evrópu á iiR'sta ári og ætlar að
spila í öllum stærstu borgum álfunnar.
* Kvikmyndaleikararnir Madaleine
Carroll og Stirling Hayden eru að skilja
eftir fjögurra ára hjónaband. Hann er ný-
kominn úr hernum og fékk þar mjög eftir-
sótt heiðursmerki fyrir hugdirfsku.
Franski gamanleikarinn Maurice Che-
valier, sem lék lengi í amerískum kvik-
myndum, var tekinn fastur í stríðslokin
og sakaður um að hafa haft samvinnu
við Þjóðverja. Iíann var sýknaður eftir
nokkurn málarekstur og dvelur nú í Nizza.
* Kvikmyndaleikkonan Sylvia Sidney,
sem er 37 ára að aldri, skildi nýlega yið
Luther Adler, 5 árum eldri, eftir að ]>au
höfðu verið gift í 7% ár og eignazt einn
son. Luther er sonur gyðingsins Jacob Adl-
ers, sem var mjög frægur leikari á sínum
tíma.
HoIIywood hefur fengið þrjár stjörnur frá
Svíþjóð, þær Gertu Garbo. Ingrid Bergman
og Signe Hasso. Fleiri munu vera ,.í pönt-
un“ Hinsvegar eru Svíar nú að fá ýmsar
danskar filmstjörnur til sín. Til dæmis
leika þau Marguerite Viby, Max Han-
sen, Ib Schönberg o. fl. meira um þessar
mundir í Svíþjóð en í Danmörku.
Marlene Dietrich kom til Berlínar í vor
og hitti móður sína þar eftir 12 ára að-
skilnað. Þaðan fór hún til Parísar og
mun nú vera að leika þar í franskri kvik-
mynd með Jean Gabin, en þau hafa ein-
mitt Iöngum verið bendluð hvort við ann-
að í Hollywood.
Elliott Roosevelt, sonur Roose-
velts heitins Bandaríkjaforseta, er
að skrifa bók, sem á að heita „Bókin
um hugsanir föður míns“.
* Einn frægasti rithöfundur Banda-
ríkjanna er William Saroyan, og hafa
verið þýddar nokkrar smásögur eft-
ir hann á íslenzku og þær birzt m. a.
hér og í „Vinnunni". Hann eigriaðist
dóttur með Carol konu sinni 11. jan-
úar s.l.
❖ Anita Colby, sem hefur verið eft-
irlæti ljósmyndara í mörg ár, hefur
hlotið titilinn „fríðasta stúlkan í
Ameríku".
:k Rithöfundurinn Erich Maria
Remarque, hefur nú, eftir 17 ár, sagt,
að bók sín, „Ekkert að frétta frá
vesturvígstöðvunum“, hafi ekki átt
að vera áróður gegn stríði, heldur
aðeins sálræn lýsing á því, þegar
æskumaðurinn stendur augliti til
auglitis við dauðann. Hann segir, að
„eftir tuttugu ár minnist hermaður-
inn stríðsins eins og stórfenglegs
ævintýris".
HEIMILISRITIÐ
61