Heimilisritið - 01.02.1948, Blaðsíða 35
Höfum það hugfast, að De-
borah Kerr er hvorki fögur né
glæsileg, eftir þeim niælikvarða,
sem Hollywood hefur notað. En
hvað sem því líður, þá hefur hún
aldrei leikið í amerískri kvik-
mynd áður, svo að gífurleg hætta
hlýtur að felast í því að láta
hana leika á móti Clark Gable í
kvikmynd, sem kostar hvorki
meira né minna en 15—20 millj-
ónir króna. Kvikmyndafélaginu
virnist enginn tími til að auglýsa
leikkonuna á sama hátt og venja
er með nýjar „stjörnur“. Ef bíó-
gestirnir verða ekki hrifnir af
henni „við fyrstu sýn“, bíður
kvikmyndarinnar herfilegt nið-
urlag.
Hvers vegna leggur þá svo
voldugt fyrirtæki, sem Metro-
Goldwyn-Mayer í slílca tvísýnu?
\rar engin nafnkunn, amerísk
leikkona hæf í þetta dásamlega
hlutverk? Hvað hafði svo að
segja óþekkt, ensk leikkona fram
yfir þær amerísku, sem eytt
höfðu milljónum dollara og fjöl-
mörgum árum í að þjálfa sig,
fegra og til þess að auglýsa heill-
andi og freistandi líkama sinn?
Sannleikurinn er sá, þótt hann
sé beizkur og broslegair í senn,
að leikkonurnar í Hollywood
hafa verið gylltar dálítið um of.
X>ess vegna fékk Deborah Kerr
sitt mikla tækifæri.
Fegrunarsérfræðingarnir og
Sœnskœttafta leikkonan Ingrid fíergman,
scm nú cr oumdeilanleya „drottning“ kvik-
myndanna.
framkomukennararnir í HoIIy-
wood hafa meir og meir gert sér
far um að steypa þær fimdísir,
sem þeir hafa með liöndum, i
sama mótið. Þeir vilja að útlit,
framkoma og persónuleg áhrif
þeirra allra sé eftir saméiginlegri
fyrirmynd. Svo langt hafa þeir
gengið í þessum efnum, að ill-
mögulegt reynist nú orðið að
þekkja flestar af hinum yngri,
amerísku flimdísum hverja frá
annarri. Þær hafa tapað persónu-
33
HEnniLISRITIÐ