Heimilisritið - 01.02.1948, Page 35

Heimilisritið - 01.02.1948, Page 35
Höfum það hugfast, að De- borah Kerr er hvorki fögur né glæsileg, eftir þeim niælikvarða, sem Hollywood hefur notað. En hvað sem því líður, þá hefur hún aldrei leikið í amerískri kvik- mynd áður, svo að gífurleg hætta hlýtur að felast í því að láta hana leika á móti Clark Gable í kvikmynd, sem kostar hvorki meira né minna en 15—20 millj- ónir króna. Kvikmyndafélaginu virnist enginn tími til að auglýsa leikkonuna á sama hátt og venja er með nýjar „stjörnur“. Ef bíó- gestirnir verða ekki hrifnir af henni „við fyrstu sýn“, bíður kvikmyndarinnar herfilegt nið- urlag. Hvers vegna leggur þá svo voldugt fyrirtæki, sem Metro- Goldwyn-Mayer í slílca tvísýnu? \rar engin nafnkunn, amerísk leikkona hæf í þetta dásamlega hlutverk? Hvað hafði svo að segja óþekkt, ensk leikkona fram yfir þær amerísku, sem eytt höfðu milljónum dollara og fjöl- mörgum árum í að þjálfa sig, fegra og til þess að auglýsa heill- andi og freistandi líkama sinn? Sannleikurinn er sá, þótt hann sé beizkur og broslegair í senn, að leikkonurnar í Hollywood hafa verið gylltar dálítið um of. X>ess vegna fékk Deborah Kerr sitt mikla tækifæri. Fegrunarsérfræðingarnir og Sœnskœttafta leikkonan Ingrid fíergman, scm nú cr oumdeilanleya „drottning“ kvik- myndanna. framkomukennararnir í HoIIy- wood hafa meir og meir gert sér far um að steypa þær fimdísir, sem þeir hafa með liöndum, i sama mótið. Þeir vilja að útlit, framkoma og persónuleg áhrif þeirra allra sé eftir saméiginlegri fyrirmynd. Svo langt hafa þeir gengið í þessum efnum, að ill- mögulegt reynist nú orðið að þekkja flestar af hinum yngri, amerísku flimdísum hverja frá annarri. Þær hafa tapað persónu- 33 HEnniLISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.