Heimilisritið - 01.02.1949, Blaðsíða 34
Sönglagatextar
VÖGGULJÓÐ
Lag: T oo-ra-loo-ra-loo-ra.
Texti: „Vinargnýr“
Blunda elsku barn mitl,
blunda í di'aumland,
eg skal geyma gull þitt
gegnum myrkraland.
Blunda, vina, blunda,
blunda vœrt og rótt,
nn eru náðir stunda
um niðadimma nótt.
SEM DAGGARDKOPAR GLÓI
Lag: „Laugliing nn the outside“
Texti: ,,Hrafmnn“
Sem daggardropar glói,
djásn í geislum flói,
áfeng brosa augu þín;
af bylgjum hörpuhljóma
hallir kvöldsins óma,
dansinn stígum, dísin mín.
En engnm eflir bíður,
áfram stöðugt líður
tíminn, sem æ toll sinn fær
af ævistundum okkar,
ævintýri lokkar,
komdu vina, komdu nær.
Skapadóm öll bera blóm,
að blómstra og lmíga svo fljótt,
unz morgundís úr djúpum rís,
því dönsum þessa nótt.
Þú ert svo ung og dreymin,
yndislega feimin,
hjartað dylur heilög vé;
og æskan óðum líður,
ævintýri bíður,
fagurt og vill fá að ske.
ÉG MÆTTI ÞÉR
Lag og texti: Jóhann Jónsson
frá Sjávarborg
Ég mætti þér eitt kvöld,
þá máninn fagurt skein
og mildum geislum stráði’
um haf og land.
Við tryggðum bundumst þá.
Við alveg vorum ein,
og aldrei hugðumst slíta þetta band.
En lífið það er hverfult
og lánið það er valt.
Þú lofaðir að bíða eftir mér.
En ]>egar ég kom aftur,
gleymt var orðið allt.
því ástin hafði kulnað öll hjá ]>ér.
32
HEIMILISRITIÐ