Heimilisritið - 01.02.1949, Síða 49
Við krýningu jöður síns í akrúða
Sokkabandsordunnar.
þessa leið: „Mór o gan yw
Cymru i gyd“, sem þýðir: „Að
allt Wales sé haf af söng“.
Lloyd George lét mig hafa
þessa setningu yfir aftur og aft-
ur og sagði brosandi: „Allir Wal-
es-DÚar munu t.gna yður fyrir
þessi orð“. Þarna tókst þegar í
stað’ með okkur vinátta, sem
entist til dauða hans.
En þar með var ekki sagan
öll.
Eg mótmæli
Mér fannst það ærið verkefni,
fyrir hvern sem væri, að halda
þær ræður, sem ég ótti að halda
við þessa athöfn. Og þegar klæð-
skeri nokkur koin til að taka
mál af mér og sáiima á mig föt
fyrir þessa athöfn, og mér var
sagt, að ég ætti að vera í möttli,
brydduðum loðskinni, t'lauelis-
kirtli og hvítum silkibrókum,
fannst mér vera gengið' of langt.
Ég hafði lofað að klæð-
ast einkennisbúningi Sokka-
bandsorðuriddara, vegna þess
að það var sögulegur búningur,
sem þeirri orðu fylgdi. En hvað
myndu vinir mínir í flotanum
segja, ef þeir sæju mig í þessum
afkáralega fornmannabúningi?
Fjölskyldan lenti í hár saman
þetta kvöld. En það var eins og
venjulega móðir mín, sem bætti
úr öllu saman og bar sáttaorð
á milli.
„Þú mátt ekki taka svona at-
höfn of hátíðlega“, sagði hún.
„Vinir þínir munu skilja, að’ sem
prins hefur þú ýmsum skyldum
að gegna, er kunna að þykja dá-
HEIMXLISRITIÐ
47