Heimilisritið - 01.12.1951, Síða 63
GETTU
BETUR!
Gamansaga
eftir
Gerhard Arnesen
Hlustuðuð þið'á útvarpsþáttinn
„Hitt og þetta“, þegar Petter
Fransen var spurður, hvers
vegna hesturinn hefði fjóra
fætur? Hér getið þið lesið um
það, sem gerðist, bæði þá og á
eftir.
ÞÓTT undarlegt sé, er það
hið ófáanlega, sem mest er sótzt
eftir. Ein af heitustu óskum
Randi í langan tíma, var sú, að
fá að vera viðstödd útvarpsþátt
í stóra salnum, og sjálfur hafði
ég heldur ekkert á móti að fá
að taka þátt í útvarpssendingu
og láta ljós mitt skína í spurn-
ingaþættinum, á sama hátt og
ég var vanur að gera fyrir
framan tækið heima hjá okkur.
„En það fáum við víst ekki
fyrr en við höfum átt silfur-
brúðkaup,“ sagði ég við konuna
mína.
„Ég skil ekki, hverjir það eru,
sem alltaf eru viðstaddir,“ sagði
Randi. „Alltaf, þegar eitthvað
er gaman, er fólk í salnum, sem
DESEMBER, 1951
61