Heimilisritið - 01.10.1954, Síða 7
hringt og vinnustúlkan vísaði
Gavin Blair inn í stofuna til
min. Ég sá þegar, að hann var í
mikilli geðshræringu. Hann
sagði mér þegar, hvað honum
lá á hjarta.
Hinu æðisgengna æviskeiði
Orrs var lokið. Til þess að reyna
að komast aftur á réttan kjöl.
hafði hann í örvæntingu gripið
til peninga húsbónda síns og tap-
að þeim á braski. Þá hafði hann
strokið og farið um landið þvert
og endilangt á flótta undan lög-
reglunni, sem var á hælunum á
honum, en að lokum hafði hann
látið fyrirberast á hótelinu Har-
rogate. Þegjandi rétti Gavin mér
blað með nýjustu fréttunum.
Þar las ég um endalokin —
Orr hafði skotið sig. Á meðan
þessu fór fram, sagði Blair, hafði
Jean veikzt, og þar sem hún var
orðin blásnauð, hafði hún verið
flutt á fátækrasjúkrahús. Ég
varð að fara undir eins og skoða
hana. Angistin skein úr augum
vinar míns. Ég hristi höfuðið.
Hann elskaði hana enn — heitar
en nokkru sinni fyrr.
Þó að ég væri við því búinn
að sjá nokkra breytingu á fyrr-
verandi bekkjarsystur minni,
brá mér mjög í brún, þegar ég
sá hana. Ástand hennar bor vott
um langvarandi ofrejmslu, kvíða
og jafnvel misþyrmingar. Hún
var mögur og sinnulaus með
bauga undir augunum og rauða
díla í kinnunum, sem bentu mér
á, að ég þyrfti að rannsaka brjóst
hennar gaumgæfilega. Ég þekkti
hana ekki aftur fyrir sömu
stúlku.
Þegar ég kom heim, beið Blair
þar enn og gekk fram og aftur
um gólf. Ég skýrði honum frá
því, að Jean væri með lungna-
tæringu.
Ég var mjög alvarlegur, því
að, eins og ég tjáði honum hrein-
skilnislega, virtist lítil von um
bata í þessu aumlega sjúkra-
húsi, þar sem hún dvaldi nú.
Nauðsyn krafði, að hún yrði
strax flutt á fyrsta flokks
sjúkrahús, þar sem hún fengi
hvíld, ferskt loft, góða hjúkrun,
hollt fæði, yrði blásin og væri
stunduð af sérfræðingi. Og auð-
vitað hafði hún ekki efni á þessu-
Það varð þögn, síðan sagði
hann mér rólega, þó að ákefðin
dyldist ekki, að gera tafarlaust
nauðsynlegar ráðstafanir. Hún
mætti ekki vita neitt um milli-
göngu hans. En hann kvaðst
ætla að standa straum af kostn-
aðinum, sem þetta hefði í för
með sér. Ég vissi, að hann hafði
með erfiðismunum sparað sam-
an allmikla upphæð. Mér var
einnig kunnugt um, að hann
hafði ætlað til Svíþjóðar þetta
OKTÓBER, 1954
5