Heimilisritið - 01.10.1954, Blaðsíða 39
Illir andctr, lyf og læknar
t----------------------------------------
Framhald bókarinnar um þróun
læknavísindanna, eftir dr. med.
HOWARD W. HAGGARD
_______________________________________)
PEST OG PERSÓNUFRELSI
DREPSÓTTIR GEISA enn
óhindrað í mörgum löndum, sem
skemmra eru á veg komnar í
siðmenningu en vesturlanda-
þjóðir, en slíkar farsóttir valda
okkur ekki neinum áhyggjum
vegna eigin öryggis. Flest fólk
~ tekur það sem sjálfsagðan hlut,
að við séum ómóttækileg, eða þá
að vegna landfræðilegrar legu
okkar geti þessar sóttir ekki náð
til okkar. En sannleikurinn er sá,
að við erum engu ómóttækilegri
nú en f'ólk var á miðöldum. Það
1 eru fáir sjúkdómar, sem land-
fræðileg staða ein fær hindrað.
Það er ekkert nema nútíma
varnarráðstafanir, sem halda ..
sýkingunni frá oss.
Asíu-kólera er landlægur sjúk-
dómur í Indlandi, en kemur ekki
upp í Ameríku nú á tímum. En
árið 1842 breiddist þessi sjúk-
dómur frá heimastöðvum sínum
í Asíu yfir mestan hluta Evrópu
og Ameríku. Hann hélt innreið
sína í Quebeck í Canada og það-
an hélt hann áfram eftir sam-
gönguleiðunum upp til Vatn-
anna Miklu og komst vestur á
bóginn alla leið að herstöðvun-
um við efri Missisippi. Sama ár
komst hún til New York, og 1840
létust um það bil 4500 úr kóleru
í þeirri borg.
Næstu tuttugu ár dóu 9000
manna í New York úr þessum
sjúkdómi. Árið 1883 gaus upp
landfarsótt og sjúkdómurinn
komst aftur til New York, en
nú voru varnarráðstafanir komn-
ar til skjalanna. Einungis níir
manns létust í borginni.
Síðan hafa ekki orðið nein
kólerudauðsföll í New York,
þótt miklar drepsóttir hafi geng-
ið sem faraldur annars staðar í
heiminum. Heilbrigðiseftirlit og
sóttkvíun innflytjenda eru hald-
góðar ráðstafanir gagnvart þess-
um sjúkdómi.
Gula-sóttin kom í veg fyrir að
OKTÓBER, 1954
I
37