Heimilisritið - 01.10.1954, Blaðsíða 20
ir. Ef komið er fram við það
eins og það verðskuldi enga virð-
ingu, finnst því það einskis vert.
Ef þú aftur á móti sýnir því
virðingu sem annarri persónu,
mun það meta sjálft sig mikils.
Og þú munt aldrei fá ástæðu til
að kvarta um, eins og sumar
mæður gera, að barnið virði þig
ekki — vegna þess, að barn, sem
finnur til sjálfsvirðingar og eig-
in þýðingar, mun aldrei þurfa
að bæta sér upp minnimáttar-
kennd með þrjózku og fyrirlitn-
ingu á móður sinni. *
Heilræði lyrir húsmóðurina
Ef skúffur cru stirðar og erfitt er að
tlraga þær út og inn, cr gott að smyrja
rendurnar mcð fciti, sápu eða talkúmi.
Fitublettum má ná af tré nteð því að
þvo þá úr sódavatni.
Bætið ávallt þvottinn áður en hann
er þveginn. Smágöt stækka oft svo í
þvotti, að flík, scm fór lítið biluð í
þvott, kcmur í hengslum úr þvottinum.
Þtinnt sápuvatn cr gott uppsölulyf.
Stigarcnningar cndast betur en clla,
cf pappír er breiddur undir hann á
tröppurnar.
Ef gat cr brcnnt á túttu, vill koma
gúmnu'lykt af henni og jafnvcl gúmmí-
bragð af mjólkinni. En hjá þessu má
komast með því að stinga cldspýtu inn
í túttuna, svo að tota myndist, og stinga
svo með kaldri nál í totuna.
Ef vatn frýs í pípu, skal bera á hana
leskjað kalk og vcfja síðan um hana
þykku lagi af heyi, hálmi cða öðru
slíku.
Hcllið aldrei köldu vatni á sjóðandi
þvott, því við það festast óhreinindin
óðara.
Hvítt atlasksilki cr gott að hrcinsa
með baðmullarhnoðra, scnt dýft er í
kartöflumjöl.
Rakkústa á ævinlega að þurrka mcð
sápunni í, cn ckki að þvo fyrst úr þcim
sápuna.
Ágætt er að lírna miða á glös mcð
cggjahvítu. — Blikkdósir þarf oft að
nudda mcð sandpappír áður en miði er
límdur á þær.
Ráðlcgt er að vefja vasaklút eða öðru
slíku um flöskuhálsinn, þcgar tappi er
tckinn úr flösku. Ef flaskan brotnar,
sem kcmur fyrir, er minni hætta á slysi.
Ljósmyndir, sent farnar cru að fölna,
má venjulega skýra mcð því að dýfa
þeim ofan í brætt vax, lcggja þær svo
innan í þcrripappír og strjúka svo yfir
þær með volgu strokjárni. Síðan er
myndin nudduð mcð þurrum klút,
18
HEIMILISRITIÐ