Heimilisritið - 01.10.1954, Blaðsíða 11
geima, heldur af því, að eitthvað
sérstakt er um að vera, sem lað-
ar að — bridge, póker, sýning
eða önnur skemmtiatriði. Jafn-
vel þó að skemmtiatriðin séu góð,
óska of margir gestir daginn eft-
ir, að þeir hefðu hvergi farið.
Svo þú ættir að byrja gesta-
listann á aðlaðandi kvenfólki.
ALGENGUR misskilningur er
það, að velja fyrst þær mann-
eskjur, sem húsmóðirin telur sig
skulda eitthvað. Húsmæður, sem
hafa fyrir sið að bjóða einungis
þeim, sem geta boðið í sam-
kvæmi í staðinn, halda jafnan
leiðinleg samkvæmi, og gestir
verða brátt fáir og alltaf hinir
sömu.
Slík samkvæmi verða næstum
alltaf óþolandi. Það eru engin
ný andlit, engar nýjar sögur og
engar nýjar hugmyndir. Það er í
rauninni ekkert samkvæmi, að-
eins ókeypis máltíð.
HALDIÐ ekki einungis sam-
kvæmi til að skemmta gömlum
■vinum, heldur líka til að eignast
nýja. Sama hvar þú átt heima,
í nágrenninu eru margar per-
sónur, sem þú og gestir þínir
myndu hafa ánægju af, ef þið
þekktuð þær betur. Bjóddu þess
vegna henni fallegu frú Dóru
næst og viðfelldna manninum
OKTÓBER, 1954
hennar. Auðvitað verðurðu að
greiða samkvæmisskuldir þínar,
en dreifðu þeim á nokkur sam-
kvæmi.
Stundum verðurðu að ráða
fram úr því, hvort þú átt að
bjóða hjónum, ef einungis ann-
að þeirra er aðlaðandi'. Látið þá
konuna ráða úrslitum. Sé hún
æskileg, þá bjóðið þeim, epda
þótt maðurinn hennar sé leið.-
indaskarfur.
ÞAÐ ER ekki erfitt að vera
þægilegur meðlimur í hópi. Móð-
ir mín kenndi mér eina góða
reglu, þegar ég var unglingur.
Hún er þessi: Bablaðu ekki
um ekki neitt, einungis til þess
að halda uppi samræðum. Tal-
aðu ekki, nema þú hafir eitthvað
að segja. Þar á meðal má nefna
spurningar, sem koma öðrum til
að annast samræðurnar og
hvetja þá til að láta ljós sitt
skína. Spyrjið einhvern um hann
sjálfan, fjölskyldu hans, verk
hans og skemmtanir. Og láttu
ekki hugann hvarfla of mikið.
Hlustaðu! Hlæðu á viðeigandi
tíma, skjóttu inn smá athuga-
semdum til að hvetja hann. Má
vera að þú talir ekki 100 orð á
heilu kvöldi, en með þessu móti
getur þú orðið hvatamaður sam-
talsins og mjög eftirsóttur.
Einn af föstu gestum Stork-
9