Heimilisritið - 01.10.1954, Qupperneq 57
ÓPERUÁGRIP XVIII.
Lohengrin
Ópera í þremur þátium eftir
Richard Wagner. Texti eftir sama.
Fyrst leikin í Weimar 1850.
PERSÓNUR,:
Hinrik I., konungur Þýzkalands .... Bassi
Lohengrin .................... Tenór
Elsa af Brabant ............. Sópran
Friedrich Telramund, greifi af
Brabant ................ Bariton
Ortrud, kona hans ...... Messósópran
Staður: Við Schelde.
Tími: Tíunda öld. N
I. þáttur
Hinrik konungur er kominn
til Brabant til að' sameina ætt-
kvíslirnar þar gegn innrás Ung-
verja, en verður þess þá vísari,
að fylkið er stjórnlaust. Gott-
fried, sonum látna hertogans, er
horfinn og Telramund, sem ver-
ið hefur ríkisstjóri fyrir Gott-
fried, sem var undir lögaldri,
krefst hertogatignarinnar, knú-
inn fram af Orstrud, konu sinni.
Hann ákærir Elsu, dóttur látna
hertogans, fyrir að hafa myrt
Gottfried, bróður sinn. Konung-
UTÍnn kallar Elsu fyrir sig, en
hún neitar ákærunni og lýsir sig
reiðubúna að leggja málefni sitt
undir Guðs dóm í 'einvígi. Hún
nefnir sem verndara sinn ridd-
ara einn, sem liún hafi séð í
draumum sínum. „Draumur
Elsu“. Tvisvar hafa lúðrar verið
þeyttir og Elsa hefur kropið í
bæn, þegar riddarinn kernur í
bát, sem svanur dregur. Hann
stígur á land („Svanurinn góði,
þökk sé þér“) og lýsir því yfir,
að hann sé kominn til að vernda
Elsu, en biður hana að spyrja sig
hvorki hver hann sé né hvaðan
liann sé. Hann sigrar Telra-
mund, en þyrmir lífi lians, og
biður síðan Elsu sér til konu.
Hún játast honum og allir fagna
nema Ortrud og Telramund, sem
hafa verið gerð útlæg.
II. þáttur
Hallargarðurinn og dómkirkj-
an, nóttina fyrir brúðkaupið.
Ortrud og Telramund koma inn
tötrum búin. Telramund er bug-
aður af óláni sínu, en Ortrud
eggjar hann á að reyna að ná
aftur því, sem hann hefur tap-
að. Elsa kemur nú út á liallar-
OKTÓBER, 1954
55