Heimilisritið - 01.10.1954, Page 8

Heimilisritið - 01.10.1954, Page 8
sama ár. En þótt ég reyndi að telja honum hughvarf, lét hann orð mín sem vind um eyrun þjóta. Tveim dögum síðar lét ég flytja sjúklinginn til Braeburn, sem að öllum líkindum var bezta hæli landsins. Það var á yndis- legum stað, umkringt furuskóg- um, hátt uppi á hinum lyng- vöxnu Grampíanhæðum. Hún var orðin svo sljó og sinnulaus, að hún maldaði ekki í móinn, heldur tók það gott og gilt, þeg- ar ég skrökvaði því að henni, að dálitlum skika af jörð föður hennar hefði verið bjargað, þeg- ar þrotabúið varð, og hún yrði að verja þessum reitum til þess að fá heilsluna aftur. Ég var önnum kafinn við læknisstörfin og gaf mér sjald- an tíma til þess að fara upp á Hæli. En það var annar gestur, sem kom þangað oftar. Blair fór þessa löngu leið með lest um hverja helgi og færði Jean á- vexti eða blóm, bækur og blöð til þess að stytta henni stundir. Eins og til afsökunar sagðist Ihann gera þetta af velvild til íiennar, af því að hún væri gam- all nemandi sinn, en ljóstaði aldrei upp leyndustu tilfinning- um sínum. Þegar hann heimsótti hana, ræddi hann við hana um bæk- urnar, sem hún hafði lesið, færði henni fréttir frá Tannochbrae og reyndi að gleðja hana og vekja lífslöngun hennar. Og áður en hann fór, kom hann við í kyrr- þey á skrifstofu sjúkrahússins og greiddi vikureikninginn henn- ar. Eftir níu mánuði skrifaði yfir- læknirinn mér það, að sjúkling- urinn minn væri albata og mætti fara af hælinu. Eftir hádegi næsta sunnudag ók ég upp að Braeburn. Blair ætlaði að koma þangað frá Tan- nochbrae síðar um daginn. Jean sat einsömul á grasflötinni hjá hælinu, þegar ég kom, og horfði á f jöllin í f jarska. Ég þurfti ekki nema líta snöggvast á hana til þess að ganga úr skugga um, að hún væri orðin frísk. Hún hafði fengið aftur sitt fyrra yfirbragð, og yfir henni var kvenleg feg- urð, sem gerði hana meira að- laðandi en nokkru sinni fyrr. f svip hennar greindi ég nýjan þroska, íhygli, sem birtist í bros- inu, þegar hún heilsaði mér, og bjó áfram í augunum. Þegar við höfðum rætt saman stundarkom, sagði hún hóglát- lega: „Hvers vegna bjóstu til þessa sögu? Ég veit núna, hver greiddi læknishjálpina fyrir mig. Forstöðukonan sagði það í ógáti.“ HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.