Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 44

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 44
38 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Hvað er það, sem þu vilt mjer, Sig- valdi? Jeg hefi annað þarfara að gera en að hlusta á þetta þvaður í þjer, og ef þú hagar þjer eins og strákur, þá verður þú að sætta þig við að jeg fari með þig eins og strák«. »Gáðu að því, Einar, að jeg hefi elst um tíu ár síðan seinast; þá gastu farið með mig eins og strák, en jeg vil ráða þjer frá því að reyna það nú«. Þetta mælti Sigvaldi svo einarðlega, að Einar hætti við að neyta kreptra hnef- anna. »Þú manst ef til vill eftir því«, hjelt Sigvaldi áfram, »að skömmu áður en við systkinin lögðum af stað suður um árið, þá kom jeg til þín yfir að Nesi snemma morguns, — það var í seinasta sinnið, sem við sáumst; þá var jeg hnugginn og var að fara þess á leit við þig að jeg fengi eitthvað úr búinu til minningar um ait það, sem jeg hafði mist. Þá glottir þu og sagðir, að jeg skyldi fá hundsbætur og bentir mjer á flekkótta hvolpinn. Jeg vildi ekki þiggja hundsbæturnar,heldur fór jeg svo búinn. Nú er jeg kominn til þess að jafna reikningana«, — Sigvaldi hækkaði róminn og hvesti augun á Einar, — »og í þetta skifti kemst þú ekki undan; þjer skulu hvorki duga undanbrögð, hrotta- skapur nje hundsbætur«. Þá var Einari nóg boðið; hann stökk upp af stólnum og skálmaði nokkrum sinnum fram og aftur um stofuna; svo sneri hann sér að Sigvalda og sagði þrút- inn af reiði, með steyttan hnefann: »Ef þú hypjar þig ekki samstundis út, þá skaltu fá þær bætur, sem þú átt skil- ið«, og hann myndaði sig til að taka í axl- irnar á Sigvalda, þar sem hann sat í stólnum, en Sigvaldi sat grafkyr og horfði altaf beint framan í hann. »Vertu nú hægur svolitla stund og hlustaðu á mig og gefðu þjer tíma til að íhuga það, sem jeg er að segja við þig; það liggur ekkert á að láta hendur skifta fyr en útsjeð er um að okkur komi sam- an, en ef þú endilega vilt, þá skal jeg með ánægju fljúgast á við þig á eftir, — og þó ræð jeg þjer eindregið frá því. Þó að þú sjert sterkur og þjer sýnist jeg lítill fyr- ir mann að sjá, þá get jeg bæði klórað og klipið«. Hann stóð upp, tók þjett um báða úlnliði Einars og ýtti honum hægt niður á skrifborðsstólinn, og hvernig sem á því stóð, þá Ijet Einar það sjer lynda mót- stöðulítið. »Jeg var að segja áðan, að jeg væri kominn hingað til þess að jafna gamla reikninga. Þig mun renna grun í, hvaða reikningar það muni vera. í fyrsta lagi gabbaðir þú móður mína; jeg vil ekki segja að þú hafir svikið hana í trygðum, því að jeg hefi ekki sannanir fyrir því að þú hafir heitið henni eiginorði, en jeg veit að þú notaðir þjer það, að hún var veik fyrir gagnvart þjer. Nú er hún dá- in, svo að þú getur ekki bætt henni þær misgerðir. f öðru lagi flekaðir þú systur mína og áttir með henni barn, sem þú hefir ekki gengist við og ekki skeytt um hið allra minsta. Við þurfum ekki að fara lengra út í þá sálma að sinni, því að þú þekkir þá eins vel og jeg, en þú ert skyld- ugur að greiða þann kostnað, sem af upp- eldi drengsins hefir leitt og það skaltu líka gera. f þriðja lagi sölsaðir þú undir þig föðurleifð okkar systkina með öllurn þeim brögðum og klækjum, sem slungn- um þjóf sæma, og nú verður þú að gera svo vel að greiða mjer það fje, sem þú hefir haft af okkur. Jeg veit að þú getur það, og ef þú gerir það'ekki með góðu, þá skaltu gera það með illu, því að jeg geri mjer ekki fleiri ferðir heim til þín«. Það var líkast því sem Einar væri að verða magnþrota af vonsku og með herkj- um gat hann hreytt úr sjer þessum orð- um:

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.