Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Side 45

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Side 45
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 39 »Jeg held að þú sjert orðinn hringlandi vitlaus!« »Nei, það er engin hætta á því, — og Ttú skulum við halda okkur við efnið. Jeg fer fyrst og fremst fram á, að þú greið- ir fyrir uppeldi drengsins; mjer finst ekki of mikið að setja upp 200 krónur á ári, og þá eru það 2000 kr. fyrir öll árin, en þá kvitta jeg þig um leið fyrir með- gjöf framvegis og það kalla jeg vel slopp- ið fyrir þig. — Svo komum við að hinu atriðinu og það er margbrotnara«. Sigvaldi tók blað upp úr vasa sínum. »Þú veist það sjálfsagt, að vorið 1914 gerðu þeir Kristján á Hamri og Jón í Skógaseli upp búið í Nesi, rjett áður en þú tókst við ráðsmenskunni þar. Nú eru þeir báðir dánir, en jeg aflaði mjer vitn- eskju um þetta hjá Jóni, áður en hann dó, og svo vel bar í veiði, að hann átti nokkurnveginn nákvæmt afrit af öllum plöggunum. Jeg hefi komist yfir þetta afrit og eftir því voru eignir búsins í Nesi með jörð, húsum, skepnum og bát- um 36 þús. og 900 kr.; skuldir voru alls 18 þús. og 600 kr., svo að skuldlausar eignir töldust að vera 18 þús. 300 kr. Þú tókst við þessum eignum um vorið og átt að standa skil á þeim aftur, því að enginn lieilvita maður trúir því, að á þeim tveim- ur árum hafir þú stjórnað búinu svo, að eignirnar hafi rýrnað ofan í 2 þús. og 400 kr., eins og þú gafst reikninga fyrir. Efnahagur þinn eftir það bar þess skýr- astan vottinn, að þú hefir hreint og beint stolið þessu fje, — náttúrlega með þeirri lipurð og fyrirhyggju, sem nauðsynleg er til þess að gamall og hálf-elliær sýslu- niaður sjái ekki misfellurnar. — Ef jeg kseti svo við þessum 2 þús. kr., sem þú skuldar fyrir uppeldi drengsins, en dreg frá þeer 2 þús. og 400 kr., sem þú slettir í okkur systkinin, þegar þú flæmdir okk- nr að heiman, þá eru eftir 17 þús. 900 kr., sem þú átt að greiða mjer í kvöld. Jeg ætla mjer hvorki að fara fram á það, að þú greiðir uppbót fyrir verðhækkun eign- anna nje rentur af þýfinu, nje heldur verðfall á íslenskri krónu, sem orðið hef- ir síðan þú stalst fjenu, og þá getur þú varla talið mig ósanngjarnan. — Farðu svo að telja fram peningana, því að ann- ars tek jeg þá sjálfur úr skápnum«. Einar seildist ósjálfrátt í skáphurðina og skelti henni í lás; hann gat varla orði upp komið fyrir reiði, reis upp úr sætinu skjálfandi á beinunum og sagði: »Jeg sje að þú ert orðinn vitlaus, — jeg kalla á piltana mína til þess að leiða þig heim«. »Jeg held að það verði nú ekkert af því«, svaraði Sigvaldi og spratt upp; »við getum tveir einir gert út um þetta. Þú stalst undan vitnalaust og það er ekki nema rjett að þú skilir aftur vitnalaust«, og hann stóð teinrjettur mitt á milli harð- ar og skrifborðs. Þá stóðst Einar ekki mátið lengur. »Þorir þú að banna mjer að ganga um mín eigin hús? Jeg fer samt minna ferða«; hann reiddi upp hnefann og stefndi högginu á vinstri vanga Sigvalda, en á sama augnabliki hafði Sigvaldi bor- ið af sjer höggið með vinstri hendi og um leið seilst með hægri hnefa upp að kjálka- barði Einars. Það heyrðist dálítill smell- ur, Einar riðaði við og hefði hnigið nið- ur, ef Sigvaldi hefði ekki gripið utan um hann í fallinu og sett hann niður í stól- inn, þannig að höfuðið hvíldist fram á borðið. Eftir nokkur andartök kom Einar til sjálfs sín aftur; hann varpaði öndinni mæðilega nokkrum sinnum og leit upp fölur og hálfringlaður. Sigvaldi gaf hon- um góðan tíma til að átta sig. »Slóstu mig, Sigvaldi?« »Jeg kom svolítið við kjálkabarðið á þjer til þess að ítreka það betur, sem jeg sagði við þig áðan, að jeg rjeði þjer frá því að fara í handalögmál við mig«.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.