Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Qupperneq 47
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 41 »Svo þarftu fatla. Hefurðu ekki treí'il eða stóran klút við hendina?« »í. . forstofunni...« andvarpaði Einar. Sigvaldi fann trefil á snaga, sem til var vísað, og hengdi handlegginn í fatla. Ein- ar jafnaði sig nokkuð og settist upp í bekknum. »Nú er mínu erindi lokið og okkar við- skiftareikningur jafnaður, svo að báðir mega vel við una, eða finst þjer það ekki?« Einar skaut logandi heiftaraugum til Sigvalda. »Þar lammði jeg þjer hvolpinn flekk- ótta! Góða nótt.« »Farðu — til-------helvítis!« Sigvaldi Ijet hurðina hægt aftur á eftir sjer. III. Klukkan 7 morguninn eftir var drepið á dyr hjá Páli »vert«; hann fór sjálfur til dyra. Þar var kominn Guðmundur hrepp- stjóri á Sandi og Jóhannes sonur lians og spurðu þeir eftir, hvort Sigvalda Helga- son væri þar að hitta; kváðust þeir eiga brýnt erindi við hann. Sigvaldi k^m að vönnu spori fram til þeirra og hi ilsaði þeim. kunnuglega, því að báða þekH hann frá fyrri tíð. Guðmundur kvaðst vera með þau skilaboð frá sýslumanni til hans og Páls, að þeir skyldu koma tafarlaust upp að Efra-Vogi. »Jeg skal verða fljótur að tygja mig til«, svaraði Sigvaldi, »en fyrst þarf jeg að raka mig og drekka morgunkaffið; jeg skal verða tilbúinn eftir 15 mínútur, ef ekki stendur á kaffinu, — og þið drekkið aáttúrlega með mjer. Aftur á móti er jeg því algerlega mótfallinn að Páll sje að fara upp eftir, því að hann á ekkert er- lndi þangað, en ef sýslumaður á erindi við hann, þá er hann ekkert ofgóður til að koma sjálfur hingað ofan eftir«. N. Kv. XXII. ár, 3.-6. h. Hreppstjóri Ijet sjer þetta vel líka, drakk kaffið með bestu lyst og svo hjeldu þeir af stað þrír saman, en Páll stóð eftir í dyrunum og glotti. Það hafði rignt mikið um nóttina, en stytt upp með morgninum og komin land- átt með þurkgolu. Sigvaldi var hinn skrafhreifnasti, spurði margs um heyskap og sjávarafla, en mintist ekki einu orði á erindið til sýslumannsins. Það var svo sem stundarfjórðungs gangur upp að Efra-Vogi, en þeir gengu í hægðum sín- um og var klukkan að nálgast átta, er þeir komu þangað; drap Sigvaldi hvat- lega á skrifstofuhurðina og opnaði hana, áður en komið var til dyra. Sýslumaður gekk um gólf og var auðsjáanlega mikið niðri fyrir, en á stól við gluggann sat Einar Haraldsson, þungbúinn á svip og ærið rauðeygður, með vinstri handlegg í fatla. »Góðan daginn, sýslumaður. Komdu sæll, Einar, — hvernig líður þjer í hand- leggnum?« Einar leit ekki upp og ljet sem hann heyrði ekki kveðjuna. Sýslumaður hrað- aði göngunni um gólfið og neri saman höndunum í ákafa. »Þjer gerðuð mjer boð að finna yður«. »Já, og því kemur Páll ekki?« »Hvaða erindi á hann hingað? Jeg sagði honum að það væri alveg nóg að jeg færi, og jeg skal standa fyrir hans máli, ef það er nokkuð«. Blóðið hljóp framm í kinnar sýslu- manni. »Þjer hafið ekkert vald til þess að aftra því að menn sjeu kallaðir fyrir rjett, — takið þjer eftir því! Hjer er staddur mað- ur, sem kærir yður fyrir misþyrmingar og rán, og þjer verðið að sætta yður við það að jeg hagi mínum aðgerðum í því máli eins og mjer best líkar«. »Það megið þjer fyrir mjer, en Páli 6

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.