Læknablaðið - 01.03.1961, Qupperneq 71
LÆKN ABLAÐIÐ
39
129.00. Til eru þeir sjúklingar,
sem notað hafa prednison mán-
uðum eða jafnvel árum saman.
Árlegur sparnaður við að nota
Hicorton í stað Deltacortone í
ofangreindum skömmtum yrði
kr. 6900.00, miðað við núver-
andi verð, en um kr. 3400.00, ef
notað væri annað ódýrasta lyf-
ið, Delcortin.
Ég læt ofangreind dæmi
nægja, en augljóst er, að með
því að kynna sér verðið í lyf-
söluskránni má oft spara sjúkl-
ingum og súkrasamlögum stór-
fé og þjóðarbúinu um leið nokk-
urn gjaldeyri.
Sérlyf, sem innihalda aðeins
eitt virkt efni, eru yfirleitt
greidd að hálfu af sjúkrasam-
lögum. Þessi greiðsla hefur
síðan verið afnumin, þegar tek-
ið hefur verið að setja lyfin
saman hérlendis (t. d. Gantri-
sin, Largactil, Serpasil o. s.
frv.), en innlenda framleiðslan
greidd áfram að hálfu (t. d.tabl.
og syr. sulfafurazoli, tabl.
chlorpromazini, tabl. reserpini
o. s. frv.). Þó tók ég eftir, að
Pro-Banthine er áfram greitt
að hálfu, eins og tabl. propan-
thelini brom., sem slegnar eru
hér heima. '
Ymis önnur lyf, sem inni-
halda aðeins eitt virkt efni, eru
ekki greidd af sjúkrasamlögum
(nema e. t. v. með sérstöku
samþykki trúnaðarlæknis),
þótt ekki sé um samsvarandi
innlenda framleiðslu að ræða.
Svo er t. d. um öll prednison-,
prednisolon- og nýrri barkste-
ralyf í töfluformi. 1 hinni nýju
skrá virðist þó gert ráð fyrir,
að Meticorten (og Meticorte-
lone) sé greitt eitt prednison-
lyfja í töfluformi, einnig Led-
ercort töflur, en vera má, að um
prentvillur sé að ræða.
Með nýju skránni eru af-
numdar greiðslur á nokkrum
sérlyfjum, sem greidd hafa ver-
ið að hálfu til þessa, og sé ég
í þeim hópi Acetylcholine,
Chlotride, Diamox, Preludin og
Salisan.
Þá hafa allmörg nýleg lyf
bætzt í hóp þeirra, sem greidd
eru að hálfu, t. d. Ademil,
Cardilan, Centyl, Dipsan, Mel-
leril, Rontyl, Tofranil og hin
nýju barksteralyf, Decadron,
Kenacort og Ledercort, þegar
ætluð eru til útvortis notkunar.
Meðal nýlegra lyfja, er nú verða
greidd að %, tók ég eftir Leder-
mycin, Lederkyn og Midicel, en
Diabinese fá sykursýkissjúkl-
ingar hér eftir greitt að fullu,
með samþykki trúnaðarlæknis.
Meðal nýrri lyfja, er ekki
verða greidd, má nefna t. d.
Librium, Stelazine og Stemetil.
Nokkur nýleg, prýðisgóð lyf
við háþrýstingi hafa þann ókost
að þau valda kalíumtapi í lík-
amanum, og þarf því oftast að
gefa með þeim kalíum, ef þau
eru notuð í langan tíma, eins
og venja er með slík IjT. Nú
fást töflur, sem innihalda bæði