Læknablaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 50
22
LÆKNABLAÐIÐ
gulu án stíflu tilheyrandi lyf-
læknum, en þetta fær augsýni-
lega ekki staðizt í öllum tilfell-
um. Stífla er ekki alltaf mek-
anísk eins og t. d. í cholangiol-
itis, þar sem aðgerð kemur ekki
að gagni. A hinn bóginn er
miltisnám gert við blóðgulu,
sem er gula án stíflu. Hún,
ásamt gallstíflu af mekanísk-
um orsökum, eru þær tegundir
gulu eftir þessari greiningu, þar
sem skurðaðgerð kemur til
greina.
Stífla í gallgöngum utan lifr-
ar veldur gulu því aðeins, að
stíflan sé milli þess staðar, sem
aðallifrargangar koma saman,
og papilla Vateri. En sé hún
ofar, útslcilur liinn óstíflaði lduti
lifrarinnar nóg til þess, að gula
kemur ekki fram.
Mestu máli skiptir því að
greina á milli gulu, sem krefst
aðgerðar, og gulu, þar sem
skurðaðgerð kemur ekki til
greina. Oft liggur sú greining
nokkuð beint við, eftir að metin
er sjúkrasaga og sjúklingur
skoðaður, saur og þvag athug-
að, sérstök blóðpróf gerð og
röntgenmyndir teknar, en stund-
um er þetta flóknara.
I sjúkrasögunni geta fólgizl
mikilsverðar upplýsingar, t. d.
um starf sjúklingsins með til-
liti til efna, sem hafa eitui’áhrif
á lifrina, alkóhóls o. fl.; enn
fremur, hvort viðkomandi hef-
ur umgengizt gulusjúkling eða
hann hefur haft gulu fyrr á
ævinni. Komast verður að þvi,
hvort sjúklingur hefur tekið
nokkur lyf, sem vitað er að geti
haft eituráhrif á lifur; einnig,
hvort sjúklingur hefur fengið
sprautur eða blóðgjafir nýlega
og þá hvaða efnum hefur verið
sprautað eða jafnvel, hvort tek-
ið hefur verið hlóð úr eyra eða
fingri. Hafi gallblöðruaðgerð
verið framkvæmd á sjúklingn-
um áður, getur enn fremur ver-
ið um að ræða steina í gall-
gangi, eða þrengsli (stricturu)
eftir aðgerð. Hitahækkun með
hrolli bendir gjarnan til cholan-
gitis. Þó her þess að gæta, að
hitahækkun ásamt skjálfta
fvlgir preicterisku stigi veiru-
gulu, en hrollur er oft meira
áberandi í cholangilis. Kláði
kemur oft snemma í gulu vegna
stíflu utan lifrar, en sést einnig
við lifrargulu, en er ekki eins
áberandi og kemur seinna.
Verkir eru vfirleitt ekki mikl-
ir í lifrargulu. Þar eru frekar
leiðindaþyngsli og óþægindi í
epigastrium og h. hypochondri-
um. En miklir verkir hægra
megin í kvið eða epigastrium
með kveisum, sem leggja aftur
í bak eða upp í öxl og þarfn-
ast deyfilyfja, gjarna samfara
hrolli og hitahækkun, ásamt
dökku þvagi og ljósum hægð-
um, benda með nokkurri vissu
til steina í choledochus. Þó get-
ur verkur verið lítill, einkum
hjá gömlu fólki. Verkir geta
einnig fylgt krabbameini i hris-