Læknablaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 60
32
LÆKNABLAÐIÐ
unum, og liefur Richard drepið
á nokkur atriði þegar.
Einstöku sinnum má draga
jákvæðar ályktanir af yfirlits-
rannsóknum án skuggaefna:
Hnútótt lifur með æxlum, sulli
eða jafnvel cirrhosis; sjúkdóms-
fyrirbæri utan lifrar, er kunna
að stífla gallrennsli; stórt níílta
samfara icterus hæmolyticus o.
s. frv. Annars erum við háðir
skuggaefnum við sjúkdóms-
greiningar í lifur, gallvegum og
næsta nágrenni.
Ég mun drepa á nokkrar
rannsóknir, sem standa okkur
til hoða við greiningu á æxlum
i briskirtli. Þar er því miður
ekki um auðugan garð að
gresja, og oftast er æxlið, sem
við erum að leila að, orðið of
stórl í þann mund, er við finn-
um það, og farið að valda gulu.
\Tenjulcgar bariumrannsóknir á
maga og skeifugörn beinasl
aðallega að því að sýna fram
á expansiv eða infiltrativ fyrir-
bæri í skeifugarnarlykkjunni;
enn fremur getum við með se-
lccliv angiografi i a. celiaca eða
jafnvel inn í a. gastroduodenalis
með allmikilli nákvæmni stað-
selt nokkuð smáa processa í
caput og fremri hluta corpus
pancreatis. Mikið hefur verið
revnt til ])ess að fá fram skugga-
efni, sem hefðu sérstakt pan-
creasaffinitet, en illa gengur
það og briskirtillinn er enn þá
veikasti hlekkurinn iallri geisla-
greiningu æxla.
Skuggaefnarannsóknir á gall-
vegum gerum við aðallega á
tvennan hátt: með þvi að gefa
skuggaefni sem inntöku eða
með inndælingu þess í æð.
Skuggaefni til gallvegarann-
sókna verða að fullnægja eftir-
farandi skilyrðum: Þau verða
að vera hepatotrop; þ. e. út-
skiljast gegnum lifrina í ríkari
mæli en t. d. gegnum nýrun;
þau verða að vera lipofil; þ. e.
leysanleg i galli, þvi að það er
sá eiginleiki þeirra, sem við not-
um. Af þessu leiðir einfaldlega
það tvennt, að sé útskilnaðar-
kerfi lifrarinnar skaddað, hvort
heldur vegna stiflu eða frumu-
skemmdar, fer ekki þessi út-
skilnaður fram á eðlilegan hátt.
Nú eru efnin þess eðlis, að það
er ekki hættulegra að gefa
þau gulusjúklingum en öðrum;
þau skiljast út um nýrun, svo
fremi sem tubularfunktion
nýrnanna er í sæmilegu lagi.
Árangurinn af að gefa gulu-
sjúklingum skuggaefni til að
sýna gallvegi eða að nota þau
sem funktionspróf, er bins veg-
ar ákaflega vafasamur. Öhætt
er að fullvrða, að hvort heldur
sem um stíflugulu eða lifrar-
gulu er að ræða, er oftast til-
gangslaust að gera gallvega-
rannsóknir með skuggaefnum,
sem annaðhvort eru gefin sem
inntaka eða inndæling í æð, til
þess að komast nær greining-
unni, og vil ég leggja alveg sér-
staka áherzlu á þetta.