Læknablaðið - 01.06.1965, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
13
LÆKNABLAÐIÐ
50. árg. Júní 1965
ASalritstjóri: Ólafur Bjarnason.
Meðritstjórar: Magnús Ólafsson
og Þorkell Jóhannesson (L. ÍJ,
Ólafur Geirsson og Ásmundur
Brekkan (L. R.)
rélagspremsmiðjan h.f.
HLUTVERK
LÆKMTÍMA-
RITA.
í tilefni .»0 ara
afinælis Lækna-
blaðsins.
Læknar eru með eiði skuld-
bundnir til þess að halda kunn-
áttu sinni við og auka. Þetta
er vissulega þung kvöð og vafa-
lítið langt umfram það, er kraf-
izt verður af flestum mönnum
öðrum. Heimsóknir, viðtöl,
námskeið og námsdvalir eru
allt viðurkenndar aðferðir til
þess að auka og viðhalda kunn-
áttu manna. Ekkert mun þó afla
læknum meiri kunnáttu og
þekkingar en lestur hóka og
tímarita, er um málefni þcirra
fjalla. Útgáfa læknatímarita og
hóka er því læknum hið mesta
hagsmunamál, og svo mun ætið
vera.
Tímarit um læknisfræði skipt-
ast í stórum dráttum í tvo hópa:
sérfræðileg tímarit og tímarit
ætluð læknum almennt. Megin-
ldutverk tímarita í hvorum
tveggja hópnum er þó vitaskuld
hið sama, en það er að hirta
greinar um nýjar athuganir eða
rannsóknir, er ætla megi, að
efli þekkingu lækna og stuðli að
hættum árangri af lækningum.
Almennum læknatímaritum er
að auki ætlað að flytja fregnir
um fundahöld og aðra félags-
starfsemi lækna. Þá er stefnl
að því, að almenn læknatíma-
rit flytji ritstjórnargreinar nm
ýmis mál, fagleg eða félagsleg,
sem hæst ber hverju sinni. Enn
er það, að í almennum lækna-
tímaritum verður oftlega að
verja nokkru rúmi til hags-
munabaráttu, enda hafa lækn-
ar, sem og aðrir menntamenn,
í fjölmörgum löndum löngum
átt upp brattann að sælcja und-
ir stjórnvöld um einföldustu
réttindamál sin.
Einungis er á færi milljóna-
þjóða að gefa út sérfræðitima-
rit í læknisfræði. Islenzkir sér-
fræðingar í læknastétt eiga
greiðan aðgang að samnorræn-
um sérfræðitímaritum (Acta),
er öll eru í miklu áliti og fara
víða um heim. Óhjákvæmilegt
er hins vegar, að læknastétt
hvers lands, — svo fremi, að
þar sé einhver menningarvið-