Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 59

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 59
LÆKNABLAÐIÐ 31 Því miður kemur stungusýnis- taka ekki alltaf að gagni í þess- um tilfellum. Læknar St. Tho- mas’ Hospital í London hafa þó lýst vefjabreytingum, sem þeir telja einkennandi. Aðalat- í'iði þessarar skemmdar eru galhitfellingar í smæstu ganga i miðjum lohuli, en Iiins vegar sjást aðeins mjög lítil einkenni um skemmd á lifrarfrumunum sjálfum. Ef vel er leitað, munu menn samt sem áður finna merki um lifrarfrumuhrörnun á smáblett- um með lítils háttar hnatt- frumuíferð í kring, ckki ólíkt pericholangitis. Enda þótt ekki sjáist nein merki um granulo- cvta exudat og bæði gallganga og lifrarfrumur skorti víðast hið ruglingslega útlit, er stund- um mjög erfitt að greina þessa skemmd frá vægri stíflugulu utan lifrar eða lifrarbólgu í aft- urbata. Nauðsynlegt er, að meina- fræðingurinn viti, hvaða lvf hafa verið gefin, svo að hann geti réttilega skýrt þessar skemmdir. Þetta er eitt dæmi af mörgum, sem sýna nauðsyn þess, að náin samvinna sé milli hinna ýmsu sérfræðinga, ef góður árangur á að fást af mis- munandi greiningaraðferðum. Enn eitt fyrirbæri, er stund- um verður á vegi og getur verið erfitt að skýra, er gula hjá drykkjusjúklingum. Hér er um að ræða einstaklinga, sem koma með vaxandi gulu, eftir að hafa verið á því í nokkurn tíma. Hjá jiessum sjúklingum sést gjarn- an það fvrirbæri, sem Gall kall- ar toxískan hepatitis. Undir þessum kringumstæð- um kemur stungusýnistaka oft að góðu haldi, því að skemmd- in er auðgreinanleg frá öðrum sjúkdómum, sem valda gulu. Lifrin er geysilega fiturík, en útlit fitunnar virðist ólíkt því, sem sést hjá hungur-sjúkling- um án gulu eða annarra ein- kenna um truflað lifrarstarf. Seríu-sneiðar hafa sýnt, að toxískur hepatitis af jjessari gerð getur gengið til baka. Í sjúklingum, sem liefur batnað, sjást aðeins smávægilegar leif- ar af skemmdinni. í öðrum til- fellum progredierar sjúkdóm- urinn og endar í útbreiddri nec- rosis, sem valdið getur coma hepaticum. Það, sem hér hefur verið sagt, er að mestu byggt á reynslu annarra, en nú er kominn tími til að við gerum okkur grein fvrir því, að hvaða notum j)essi tækni hefur orðið hjá okkur og gaumgæfum þau 170 tilfelli, sem hér hafa verið rannsökuð á þennan hátt, en það myndi vera efni í annað symposium. Á. B.: Aðstoð röntgengreiningar við icterusflokkunina er tiltölulega takmörkuð. Hún heinist fyrst og fremst að stíflugulusjúkling-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.