Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 77

Læknablaðið - 01.06.1965, Side 77
LÆKNABLAÐIÐ 45 sökklækkunar hjá fólki með hækkað sökk. Höfundar álykta eftirfarandi af rannsóknum sínum: 1. Aðferð þeirra að nota KoEDTA-hlóð, blandað 0,85% saltvatni (4 hlutar hlóð og 1 hluti saltvatn) við sökkmælingu, leiðir til ná- kvæmlega sömu niðurstöðu og hin venjulega Wester- grens-aðferð (með 3,8% natriumcitrat-upplausn). 2. Gera má, með aðferð höf- unda, sökkmælingar á K3EDTA-blóði eftir 12 klukkustunda geymslu við 4°C, sem fyllilega eru sam- bærilegar við veniulega Westergrens-aðferð við sökkmælingar. 3. Með sökkmælingum á ó- þynntu K3EDTA-blóði fást niðurstöður, sem eru ekki sambærilegar við venjulega Westergrens-aðferð. 4. Höfundar telja aðferð We- stergrens við sökkmælingar tæknilega hetri en Wintro- hes-aðferð og álíta hana veita betri heimildir um sjúkdómsástand. Höfundar hafa valið sér rann- sóknarefni, sem legið hefur fyr- ir hvers manns dyrum síðustu ár, og gert því rækileg og góð skil. Sívaxandi notkun á EDTA- hlóði við blóðmeinarannsóknir hefur ýtt rannsókn höfunda af stað. E. Ó. J. Study of the Etiology of Amyo- trophic Lateral Sclerosis (ALS) — Zilber L. A. et al. Gamaleya Inst. of Epidemicology and Microbio- logy, USSR Acadof Med. Scis., Moscow-Bull. WLD. HLTH ORG.: 1963, 29/4 (449—456) & Erc. Med. N. P.s„ Vol. 17, No. 11, Nov. ’64 (Abstr. 6852). Tilraunir hafa sýnt, að hægt er að framkalla ALS i Macaca rhesus öpum með því að dæla i þá upplausn úr miðtaugakerfi sjúklinga, er dáið hafa úr ALS. Aparnir vei’ða fvrst veikir eftir langan tíma — eða eitt til fimm ár eða meir. Sjúkdómseinkenni og vefjabreytingar líkjast mjög ALS hjá mönnum. Myndanir, er líkjast veirum, fundust i mænu sjúklinga með ALS. Þær voru látnar fara tvisvar gegnum mýs og var þeim dælt intracerebralt. Þetta dró ekkert úr sýkingarmætti þeirra. Þessar „veirur“ voru ekki skaðlegar fyrir mýs eða önnur tilraunadýr. K. R. G.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.