Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 7

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 7
LÆKNABLAÐIÐ 185 Stefán Jónsson, Sigurður B.iörnsson’ MAGASYRA Skoðanir hafa löngum verið skiptar meðal lækna um gildi magasýrumælinga við greiningu og meðferð meltingarkvilla.1 og þess vegna misjafnt, hversu læknar færa sér í nyt slíka athugun til hjálpar. Án efa liggja margar orsakir til þessa, en ekki er ólíklegt, að þær megi að ein- hverju leyti rekja til mismunandi aðferöa við rannsóknir og mat á niðurstöðum, eu verulega hefur skort á samræmingu í þessum efnum, þótt stefnt hafi í rétta átt á síðari árum. Fleira kemur til greina er vikið verður litillega að síðar i þessan grein. Rannsóknir á magasafa má rekja aftur til ársins 1912, er Ehrinreich:i gerði at- huganir á magasafa, er hann safnaði í stutt tímabil hvert á eftir öðru. Frá þeim áratugum, er liðið hafa síðan, er að finna mikið safn ritverka um magasýrumæling- ar. Myndun magasafa er háð ýmsum þátt- um, er verka annað hvort hvetjandi eða letjandi. Ýmsir hvetjandi þættir hafa lengi verið þekktir, aðrir skemur. í því sam- bandi má nefna lyf eða fæðu gefna sem staðlaða máltíð. Polland og Bloomfieldfi voru fyrstir til að nota histamín dihydro- clorið árið 1931. Insulin var fyrst notað af Hollanderr> 1946 og 1951 birti Roth niðurstöður af caffein-hvatningu. Á seinni árum hafa einkum tvö Ivf verið notuð, betazole, öðru nafni histalog, sem er isomer við histamín, og penta- gastrin. Bæði þessi efni hafa þá kosti um- fram histamín, að aukaverkanir eru litlar en áhrif svipuð hvað varðar myndun magasýru. Síðla árs 1972 voru gerðar verulegar breytingar á magasýrumælingum á Borg- arspítalanum. Hætt var sýnatöku á klin- iskum deildum og sjúklingar hafðir á 1. Rannsókna- og Lyfjadeild Borgarspítalans. Rannsóknadeild meðan á athugun stend- ur. Ný tæki voru tekin í notkun, bæði fyrir sýnitöku og sýrumælingar. Hætt var notkun histamín og histalog tekið í stað- inn. Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir þeim rannsóknum, er gerðar voru næstu tvö árin. EFNIVIÐUR Á umræddu tímabili komu til rann- sóknar alls 265 sjúklingar. Af þeim voru 143 karlar og 122 konur. Frá Lyfjadeild komu 159 sjúklingar, frá Handlæknis- deild-46 og 60 voru utan spítala. í töflu 1 sést flokkun þessara sjúklinga eftir sjúk- dómi, kyni, meðalaldri og aldursdreifingu. Sjúkdómsgreining er byggð á niðurstöð- um kliniskrar athugunar, Röntgen-skoð- unum og magaspeglunum. RANNSÓKNAR- AÐFERÐ Sjúklingur kemur fastandi að morgni á Rannsóknadeild. Einnota magaslanga af Levingerð er sett niður í gegnum aðra hvora nösina. Staðsetning slöngu er ákveðin þannig, að sjúklingur er látinn drekka nokkra sopa af vatni og slöngu hagrætt, þar til auðvelt er að soga það upp. Magi er þannig tæmdur og notuð til þess 50 ml glersprauta. Sé þessi aðferð notuð, er ekki talin ástæða til að leggja magaslönguna samkvæmt Röntgenskygg- ingu.4 Slanga er síðan tengd sérstaklega gerðri magasogdælu af Egnell gerð með stillanlegum sogkrafti, venjulega 50-70 mmHg. Öðru hvoru er blásið niður lofti og sogað með sprautu til að fyrirbyggja stíflur. Sýnatöku er þannig háttað, að fyrst er sýni safnað í 2x30 mínútur, síðan er gefið histalog 1,5-2,0 mg/kg og safnað í 3-4x30 mínútur eftir því, hvernig háttað er sýrustigi og magasafamagni. Mæling sýru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.