Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1977, Page 33

Læknablaðið - 01.10.1977, Page 33
LÆKNABLAÐIÐ 199 Jón Hilmar Alfreðsson KVIÐSPEGLUN (Laparoscopia)1 YFIRLIT YFIR 371 AÐGERÐ Á LANDSPÍTALANUM 1971-1974 Kviðspeglanir voru teknar upp á kven- sjúkdómadeild Landspitalans árið 1971. Árlegur fjöldi þessara aðgerða hefur sið- an farið jafnt vaxandi. í árslok 1974 hafði 371 speglun verið framkvæmd. Könnun var gerð á ábendingum (indicatio) til þess- ara aðgerða og fengnum greiningum í þeim tilgangi að meta gildi þeirra í með- ferð ákveðinna vandamála í kvenlækn- ingum. Jafnframt var gerður samanburð- ur við tilsvarandi uppgjör frá Lundi í Svíþjóð. Ástæða þykir til að kynna læknum þessa greiningaraðferð, sem svo mjög er orðin ríkjandi í nútíma kvenlæknisfræði. STUTT SÖGULEGT ÁGRIP Það mun hafa verið Þjóðverjinn Jaco'b- aeus, sem fyrstur gerði kviðspeglun á manneskju árið 1910. Síðan hefur aðferð- in þróast stig af stigi. Daninn Nordentöft benti á það hagræði að blása upp kviðinn með lofti og nota Trendelenburg stöðu. Bandaríkjamenn gerðu tengur til sýna- töku (biopsi) og rafbrennslu (diatermi), °S þegar árið 1937 mælti Anderson með, að ófrjósemisaðgerðir yrðu framkvæmdar gegnum kviðspeglun. Samhliða henni þró- aðist önnur leið til skoðunar á grindar- og kviðarholi, gegnum leggöngin, svo- kölluð „culdoscopia“. Við hana voru þarm- arnir lengi vel til trafala, þar til Decker, árið 1944, tók upp brjóst-hné stöðu og loftblásningu (pneumoperitoneum). Ytri ljósgjafi og ljósleiðsla úr trefja- gleri ollu byltingu í öllum innri speglun- um. Heiðurinn af því áttu Fourestier, Gladu og Vuliére, árið 1952. Við það dró mjög úr hættu á hita- og rafmagnsslysurn, um leið og lýsingin batnaði. Árið 1964 hóf Jón Þorsteinsson að gera 1 Erindi flutt á fundi Landspítalalækna 21. febrúar 1975. kviðspeglanir í sambandi við greiningu á lifrarsjúkdómum. Mun það vera upphaf þessara aðgerða hér á landi. NIÐURSTÖÐUR OG GILDISMAT Tafla I sýnir árlegan fjölda aðgerða. samtals 371. Tiltækar voru sjúkraskrár og aðgerðarlýsingar hjá 327, afgangs verða 44, fles'ar sendar af öðrum deildum og sjúkrahúsum. Tafla II sýnir þær viðbótaraðgerðir, sem gera má við kviðspeglun og fjölda þeirra eftir árum. Legblásning (hyidropertubatio) með indigo-bláma er notuð við rannsóknir og meðferð á ófrjósemi. Losun minniháttar samvaxta er auðveld og hefur í stöku til- fellum læknað konur af verkjum og í öðrum leitt til getnaðar. Sýnistaka frá æxlum og meinvörpum, um leið og út- TABLE I Number of laparoscopies at the National Hospital 1971-74. Year Number Explored Omitted 1971 31 27 4 1972 87 81 6 1973 110 92 18 1974 143 127 16 Total 371 327 44 TABLE II Supplementary operations to laparoscopy. Procedure 1971 1972 1973 1974 Total Pertubation 4 7 15 33 59 Lysis adhes. 3 20 16 20 59 Biopsy 0 7 6 12 25 Cystic puncture 0 1 4 6 11 El. coag. tubarum 0 0 2 11 13 Laparotomy 9 11 11 9 40

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.