Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 57

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 57
LÆKNABLAÐIÐ 217 Árni T. Ragnarsson og Björn Guðbrandsson BRÁÐ EISTALYPPUBÖLGA OG SNIJNINGUR Á EISTUM HJÁ SVEINBÖRNUM1 Inngangur: Fram til þessa hefur bráð eistalyppubólga (epididymitis acuta) ver- ið álitin sjaldgæfur sjúkdómur hjá svein- börnum. Talið hefur verið, að sú sjúkdóms- mynd hjá sveinbörnum, sem lýsir sér sem bólga, roði og verkur í pung, orsakist nær alltaf af snúningi á eista (torsio testis;, (nema að um innkýlt náraslit sé að ræða). Nýverið rak á fjörur okkar tilfelli með þessa sjúkdómsmynd og varð það til þess að við kynntum okkur þessi mál nokkuð nánar. Hér á eftir munum við lýsa þessu sjúkratilfelli, greina frá því sem vitað hefur verið um bráða eistalyppubólgu í sveinbörnum og bera saman tíðni eista- lyppubólgu og snúning á eistum í svein- börnum. Þá verður rætt um helstu að- ferðir til greininga á milli þessara tveggja sjúkdóma og loks gerð athugun á fjölda sjúklinga með þessa sjúkdóma, aldurs- dreifingu þeirra og orsakir ef þekkt er, á Landakotsspítala sl. 5 ár. Sjúkratilfelli: Sjúkl. er 5 mánaða gamalt sveinbarn, sem var óvært og hafði haft 38 stiga hita í vikutíma, en var heldur farið að skána. Þegar móðir kom heim úr vinnu að kvöldi, tók hún eftir því, að pungur barnsins var orðinn blásvartur og bólginn hægra meg- in og rauður vinstra megin. Vaktlæknir kom og lagði bamið inn bráðainnlagn- ingu, sem náraslit hægra megin. Að öðru leyti er ekkert í sjúkra- og heilsufars- sögu barnsins, nema hvað heilsuverndar- hjúkrunarkona hafði fundið fyrirferðaraukn- ingu hægra megin, þegar barnið var 3ja vikna og taldi að þar væri um vatnseista (hydro- cele) að ræða. Við komu á barnadeild er barnið með 38,1°C hita og grætur mikið. Pungur þess er mjög rauður báðum megin, en hvergi blár eða svartur og hægra eista er stórt og þrútið. Pungurinn virtist vera mjög aumur viðkomu. Mismunagreining Djúp bólga í pung (phleg- við komu: mona scroti). Snúningur á eista (torsio testis obs). Innkýlt náraslit h. megin 1 Frá Barnadeild St. Jósefsspítala, Landakoti. (incarcereruð hernia in- guinalis obs). Bráð eista- lyppubólga (acute epididy- mitis obs). Vegna þess að ekki var hægt að útiloka að um snúning á eista væri að ræða, var stuttu eftir komu gerð könnunar-aðgerð. Kom þá í ljós greinileg bólga í eistalyppu, en eistað sjálft var eðlilegt og engin merki um snún- ing. Sömuleiðis kom í ljós talsvert stórt kvið- slit, sem var lagað. Tekið var strok frá eista- lyppu í ræktun, sem siðar reyndist neikvæð. Eftir aðgerðina var barnið sett á sýklalyf, en þvagrannsókn daginn eftir sýndi gröft og bakteríur, en þar eð sýklalyfjameðferð var hafin ræktaðist ekkert úr þvagi. Skömmu síð- ar var tekin nýrnamynd og sýndi hún þenslu á nýrnabikar og þvagpípu vinstra megin, svipað og sést við bakrennsli, en bakrennslis- röntgenmynd sem tekin var daginn eftir, var alveg eðlileg. Við blöðruspeglun var þvag- blaðran og þvagpípuop sömuleiðis alveg eðli- leg, en þvagpípan var talsvert þröng. Sú ályktun var því dregin, að þarna væri um þrengsli neðst í vinstri þvagpípu að ræða og var því skömmu síðar gerð endurtenging á þvagleiðara í gegnum þvagblöðruvegginn vinstra megin (uretero-neo-cystostomia sin.) og gekk hún vel og heilsaðist barninu vei eftir aðgerðina. Bólgan i eistalyppu hafði þá smá minnkað og barnið var orðið hið hress- asta. Eistalyppubólga hjá sveinbörnum Fátt eitt hefur verið skrifað um eistalyppu- bólgu í sveinbörnum og eins og fyrr sagði var lengi talið að það væri ákaflega sjald- gæfur sjúkdómur og því vart púðri eyð- andi á hann. Talið var að sjúkdómsmynd, sem lýsti sér sem bólga, roði og verkur í pung orsakaðist nær alltaf af snúningi á eistanu hjá drengjum innan við kyn- þroskaaldur, nema að um innkýlt kvið- slit væri að ræða. í fyrra kom þó út grein um bráða eistalyppubólgu hjá börnum yngri en 15 ára og var hún byggð á upp- gjöri frá Karolinska sjúkrahúsinu i Stokk- hólmi,7 en þetta uppgjör náði til 48 tilfella. Aðrar greinar um eistalyppubólgu í svein- börnum eru einungis 3-4 að tölu og byggja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.