Læknablaðið - 01.10.1977, Side 82
232
LÆKNABLAÐIÐ
Einn þátttakandi benti á, að ihann teldi
vænlegt, að við fylgdum svipuðum reglum
eins og væru gildandi t.d. í Noregi og víð-
ar á Norðurlöndunum, að frumkvæði til
þess að fjalla um slík mál ættu að vera hjá
svæðafélögunum.
í>á lagði umræðustjóri fram tillögur, sem
eins konar uppkast að starfsreglum fyrir
væntanlega siðanefnd og hvernig hún
skyldi skipuð. Hann sýndi einnig skema
yfir, hvemig slík nefnd ætti hugsanlega
að tengjast stjórnum læknafélaganna og
landlæknisembættinu og yfirleitt dóms-
kerfinu. Væri raunar ekki vanþörf á að
einfalda 'hlutina, því ekki hefði verið hægt
að koma öllum atriðum inn á skemað, sem
þar ættu þó heima.
SIÐANEFND LÆKNAFÉLA.GS ISLANDS
1. Innan félagsins starfar siðanefnd.
Hlutverk siðanefndar er
að hafa eftirlit með og stuðla að því, að
siðareglur, lög og samþykktir félagsins séu
hafðar í heiðri,
að vera læknum til ráðuneytis um mái-
efni er varða samskipti lækna innbyrðis
og um siðareglur lækna, að kynna lækn-
um og læknanemum siðareglur, lög og
samþykktir félagsins,
að fjalla um meint brot á siðareglum,
lögum og samþykktum félagsins.
2. Siðanefnd tekur til umsagnar eða úrskurð-
ar, eftir því sem við á, erindi og umkvart-
anir frá
sjúklingum og aðstandendum þeirra,
læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki,
stjórnum L.I., svæðafélaga, sérgreinafé-
laga og heilbrigðisstofnana eða siðanefnd-
um þeirra, ef til eru, og heilbrigðisyfir-
völdum.
Nefndin fjallar einnig um fullyrðingar, sem
fram kunna að koma í fjölmiðlum, um
meint misferli einstakra lækna og hópa
lækna.
Rísi ágreiningur um verksvið nefndarinnar
skal málinu skotið til stjórnar L.l.
3. I siðanefnd sitja þrír læknar. Skulu þeir
kosnir á aðalfundi L.I. til tveggja ára í
senn.
Varamenn skulu vera jafnmargir, kjörnir á
sama hátt og til jafn langs tíma.
Hvorki aðalmenn né varamenn mega eiga
sæti i stjórn L.l.
Svæðafélög hérlendis kjósa árlega einn
lækni og annan til vara í fulltrúaráð siða-
nefndar. Skulu þeir vera trúnaðarmenn siða-
nefndar innan svæðafélagsins og annast
gagnasöfnun fyrir nefndina, þegar þess er
óskað.
Kjörtímabil fulltrúaráðs er milli aðalfunda,
4. Siðanefnd skal fjalla um hvert það mál, sem
henni berst og afgreiða það með eins skjót-
um hætti og kostur er hverju sinni.
Nefndin heldur gerðabók um störf sín.
Gerðabókin er eign Læknafélags Islands.
Ritari siðanefndar skal vera lögfræðingur.
Stjórn L.l. greiðir honum þóknun fyrir
störf hans.
Nefndin skal senda stjórn L.I. skýrslu um
störf sin einu sinni á ári og formaður siða-
nefndar skal skýra stjórninni frá stöðu máia
endranær, óski stjórnin eftir því.
Telji siðanefnd, að tiltekin málefni falli
ekki innan starfssviðs hennar, sendir nefnd-
in málið til stjórnar L.I.
í tillögum umræðustjóra komu fram
sömu atriði og eru í tillögum þeim, sem
endurskoðunarnefndin hefir gert að breyt-
ingu á lögum félagsins (20. gr.) og birt er
í ársskýrslu stjórnar L.í. og vísast til henn-
ar. Hin nýja tillaga gerir ráð fyrir að siða-
nefnd verði falið sama hlutverk og stjórn
L.I. sé ætlað, samkvæmt fyrri tillögunni,
nema hvað stjórn L.í. ein geti vísað lækn-
um úr félaginu.
Fundarmenn voru almennt hlynntir því,
að stofnuð yrði siðanefnd, og þær breyt-
ingartillögur, sem komu fram á þessu upp-
kasti, voru fyrst og fremst þær, að einn
fundarmanna lagði til, að það yrði ekki
hlutverk nefndarinnar að kynna læknum
og læknanemum siðareglur, lög og sam-
þykktir félagsins. Eðlilegra væri, að þetta
væri áfram hlutverk stjórna læknafélag-
anna, og voru menn almennt sammála um,
að það væri ekki skynsamlegt að hlaða of
miklum verkefnum á nefndina. Varðandi
skipun nefndarinnar þá voru menn yfir-
leitt sammála um, að þetta ætti að vera
3ja manna nefnd, sem væri kosin á aðal-
fundi. Hins vegar væri ekki ástæða til
þess, að svæðafélögin kysu sérstakan full-
trúa, því að það gerði þessa skipan óþarf-
lega flókna. Hins vegar væri eðlilegra, að
stjórnir svæðafélaganna væru sá aðili, sem
hefði samband við þessa siðanefnd, ræki
hlutverk þeirra fulltrúa svæðafélaga, sem
gert væri ráð fyrir í tiilögunum.
Sú skoðun kom einnig fram, að ekki
væri heppilegt að miða sektir við ákveðna
upphæð á okkar verðbólgutímum, heldur
væri miðað við á'kveðið hlutfall af mán-
aðarlaunum, t.d. tvöföld mánaðarlaun.
Menn voru sem sé almennt sammála
um, að það væri ekki aðeins æskilegt,
heldur beinlínis nauðsynlegt, að komið