Læknablaðið - 15.12.1983, Page 16
330
LÆKNABLADID
árangri brjóstaskoðana má nefna að um priðj-
ungur brjóstakrabbameinstilfella árið 1980
greindist við skoðun í Leitarstöðinni. Eins og
fyrr segir er mun flóknara að greina forstig og
fyrstu stig brjóstakrabbameins en sömu stig
leghálskrabbameins par sem ekki er við að
styðjast eins öruggar aðferðir til að greina
fyrstu sjúkdómsbreytingar brjóstakrabba-
meins.
Á síðari árum hefur mikið verið rætt og
ritað um hópskoðanir með brjóstaröntgen-
myndun (mammografia). Ljóst er að með
pessari tækni má oft greina lítil krabbamein í
brjóstum sem ekki eru finnanleg með preif-
ingu einni saman. Með tilliti til aldursdreifing-
ar brjóstakrabbameins (sjá mynd 3), er ótak-
mörkuð notkun brjóstaröntgen pó talin óæski-
leg fyrir konur yngri en 35 ára. Þær nýju regl-
ur sem settar hafa verið um brjóstaskoðun
(sjá fylgiskjal) gera sem áður ráð fyrir brjósta-
röntgenmyndun, sem hjálpartæki, ásamt vefja-
ástungu, við greiningu pessa sjúkdóms. í nýj-
um húsakynnum Leitarstöðvarinnar við
Reykjanesbraut verður jafnframt gert ráð
fyrir aðstöðu til hópskoðana með brjóstarönt-
genmyndun samfara preifingu brjósta.
Hinar nýju reglur um brjóstaskoðun miða
að pví að leysa hvert vandamál strax að svo
miklu leyti sem unnt er, og stefnt er að pví að
greina konuna í einhvern eftirtalinna priggja
flokka.
I. Þeim konum sem greinast með krabba-
mein eða grunsamlegar breytingar er
strax vísað á sjúkrahús par sem einhverri
eftirtalinna aðgerða er beitt:
A. Við »mikró«-kalkanir er best að að-
gerðin fari fram par sem til staðar er
brjóstaröntgentæki og pá æskilegast
að einnig sé möguleiki á »stereotak-
tiskri« ástungu.
B. Þar sem grunsamlegar breytingar eru í
hnút eða preifanlegri fyrirferð er æski-
legt að fyrir hendi sé möguleiki til
frystiskurðar áður en umfang endan-
legrar aðgerðar er ákveðið.
C. Staðfest krabbamein er meðhöndlað
samkvæmt peirri meðferðaráætlun
sem gildir á hverjum stað, allt eftir pví
hvað skurðlæknar og krabbameins-
læknar hafa ákveðið æskilegast í
hverju tilfelli.
II. Þeim konum með hnúta sem talin er
ástæða til að fjarlægja, pó krabbamein
eða grunsamlegar breytingar hafi ekki
18 ár 83%
5 ár 64 %
2 ár 44 %
1 ár 24 %
''T O)
ro ro
ó in
ro ro
■'T
Ó
■'f
Mynd 4. Mæting í Leitarstöd Krabbameinsfélagsins
til ársloka 1981 (allt landid). Frá 1964 (í 18 ár) hafa
83 % íslenskra kvenna á aldrinum 25-69 ára mætt í
skodun, par af 64 % sídustu fimm árin og 44 %
sídustu tvö árin.
verið greindar með brjóstaröntgeni eða
vefjaástungu, er vísað til skurðlækna með
aðstöðu á stofu eða sjúkrahúsi.
III. Þær konur sem ekki purfa frekari meðferð
eru hvattar til að skoða brjóst sín sjálfar
og heimilislækni er sent læknabréf frá
Leitarstöðinni par sem hann er hvattur til
að fylgjast með konunni. Ef heimilislæknir
telur að endurtekin skoðun geti leitt
eitthvað óeðlilegt í ljós, pá er honum
boðið að senda konuna á ný til skoðunar á
stöðina.
Tíðni krabbameina í eggjastokkum og í legbol
hefur aukist síðasta aldarfjórðung (sjá mynd
1). Erfitt er að meta árangur innri preifingar
sem hjálpartækis við greiningu pessara sjúk-
dóma en geta má pess að á fyrstu sjö
starfsárum stöðvarinnar (1965-71) höfðu um
25 % peirra kvenna sem fengu pessar sjúk-
dómsgreiningar verið í skoðun á Leitarstöð
síðustu tólf mánuði fyrir greiningu sjúkdóms-
ins. Af pessum konum höfðu um 70 % greinst
við skoðun á stöðinni. Því er ljóst að slík
skoðun getur flýtt greiningu pessara sjúk-
dóma, ef hún er framkvæmd reglulega.
Af framansögðu er ljóst að starfsemi á
vegum Leitarstöðvarinnar hefur leitt til mik-
illar lækkunar á tíðni leghálskrabbameins,
jafnframt pví að flýta greiningu krabbameina í