Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1983, Síða 18

Læknablaðið - 15.12.1983, Síða 18
332 LÆK.NABLADID 1. Legháls er eðlilegur en saga er um óreglu- legar eða miklar blæðingar (metrorrhagia, menorrhagia). 2. Verulegt blöðrusig, legsig eða endaparmssig. 3. Óeðlileg stækkun er á legi eða eggjastokk- um hjá yngri konum. 4. önnur ópægindi frá kynfærum, án gruns um illkynja sjúkdóm. 1.4. Tilvísun í sérskoðun í Leitarstöð Ef um er að ræða krabbameinsgrunsamleg tilfelli er hægt að vísa sjúklingi í nánari skoðun í Leitarstöðinni. 1.5. Tilvísun í leghálsspeglun Óháð svari við frumusýni skal vísa sjúklingi í leghálsspeglun (kolpóskópíu), áður en gripið er til brennslu eða frystingar, ef grunur er um leghálskrabbamein eða óljóst sár er á leghálsi, með blóðugri útferð eða ef blæðingar eru við samfarir. Jafnhliða leghálsspeglun eru tekin vefjasýni frá grunsamlegum svæðum og útskaf gert á leghálsi. 1.6. Beiðni um innlögn Ef æxli er í grindarholi (óljós hnútótt stækkun á legi eða fyrirferðaraukning í grindarholi) eða blæðir frá leggöngum eftir tíðahvörf skal biðja um innlagningu á kvenlækningadeild til preif- ingar í svæfingu eða til að gera greiningarút- skaf. Ef sterkur grunur er um krabbamein skal innlagningarbeiðni send á krabbameinsdeild Kvennadeildar Landspítalans. 2. MEÐFERÐ FRUMUBREYTINGA 2.1. Dysplasia I-II í frumusýni Dysplasi I: Nýtt frumusýni eftir 1 ár. Dysplasi II: Nýtt frumusýni eftir 6 mánuði. Ef áframhaldandi dysplasi I eða II eftir mögulega bólgumeðferð (sjá 1.2) pá legháls- speglun og vefjasýnistaka (sjá 1.5.). Ef sú vefjasýnistaka staðfestir dysplasiu II, kemur til greina meðferð með litlum fleygskurði (lítill kónn), ef um er að ræða dysplasiu III og CIS skal beitt meðferð samkvæmt 2.2 Ef vefjasýnistaka er neikvæð á að taka nýtt frumusýni eftir 1 ár. 2.2. Dysplasia III og CIS í frumusýni Allar konur með pessar forstigsbreytingar eiga að fara í leghálsspeglun (sjá 1.5.) að undangenginni mögulegri bólgumeðferð (sjá 1.2. ). Ef vefjasýni staðfestir greiningu skal gerður fleygskurður (kónn) hjá pessum konum. 3. EFTIRLIT EFTIR FLEYGSKURÐ 3.1. FuIIkominn (radical) kónn (frí skurðbrún minnst 3 mm). Eitt frumusýni eftir hálft ár, síðan 3 frumu- sýni með árs millibili. Ef öll sýni eru neikvæð, pá flyst konan yfir í eðlilegar hópskoðanir. 3.2. Ófullkominn kónn (frí skurðbrún minni en 3 mm). Tekið frumusýni og gerð leghálsspeglun með útskafi á leghálsi innan 6 mánaða og síðan ný frumusýni á 6 mánaða fresti í tvö ár, síðan árlega í önnur tvö ár. 3.3. Lítill kónn Ef dysplasi III eða CIS í fleygskurði, pá skv. 3.1. eða 3.2. Ef dysplasi I eða II í fleygskurði, pá árlega í 2 ár, síðan hópskoðun. 4. BRJÓSTASKODUN 4.1. Aldursmörk Konum á aldrinum frá 25 til 69 ára skal alltaf boðið upp á brjóstaskoðun um leið og innri preifing (gynskoðun) fer fram á Leitarstöð-B samkvæmt neðanskráðum reglum. íhaldsemi skal gætt í notkun brjóstaröntgens (mammó- grafíu) hjá konum yngri en 35 ára. 4.2. Brjóstaröntgenmyndataka og ástunga 1. Ef grunur er um brjóstakrabbamein, jafnvel pó skurðaðgerð sé talin nauðsynleg. 2. Ef hnútur finnst í brjósti, pótt hann virðist góðkynja (athugið pó konur skv. lið 4.4). 3. Ef óljóst pykkildi er í brjósti hjá konum 35 ára og eldri. 4. Ef blæðing eða dökkleit útferð er úr brjóst- vörtum (taka strok af útferð úr brjóstvörtu). 4.3. Brjóstaröntgenmyndataka 1. Ef preifing er óljós, stór og mikil brjóst, sem erfitt er að skoða (konur 35 ára og eldri). 2. Ef konan kvartar um eymsli eða verki eða telur sig finna eitthvað óeðlilegt pótt skoð- un sé neikvæð (konur 35 ára og eldri). 3. Ef annað brjóstið hefur verið fjarlægt vegna krabbameins, skal mynda hitt annað hvert ár (ef konan er ekki í eftirliti annars staðar).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.