Læknablaðið - 15.12.1983, Síða 69
LÆKNABLADID 69,371-376,1983
371
Þórarinn Sveinsson, Jón Hrafnkelsson
KRABBAMEIN í EGGJASTOKKUM GREIND
ÁÁRUNUM 1972 TIL 1980
Meðferð og árangur á þriggja ára tímabili 1978 til 1980
Grein þessi er skrifuð í minningu Guðmundar
Jóhannessonar, læknis, sem þakklætisvottur
fyrir mikið og óeigingjarnt brautryðjandastarf
hans á sviði krabbameinslækninga á íslandi og
er samstarfið við hann þakkað.
Frá ársbyrjun 1978 til dánardægurs Guð-
mundar, fyrri hluta vetrar 1981, þróaðist náin
samvinna milli hans og annars höfundar (Þ.S.)
hvað varðaði meðferð æxla í kynfærum
kvenna. Samvinna þessi leiddi til sameigin-
legra skoðana á göngudeild kvensjúkdóma-
deildar hjá þeim konum, sem komu til grein-
ingar, meðferðar og eftirlits. Fyrir lagni og
atorku Guðmundar var meðferð sjúklinga
með krabbamein í leghálsi og legi þá þegar í
föstum skorðum, en, erfiðara hafði reynst að
samhæfa meðferð hjá þeim konum, er greind-
ust hérlendis með krabbamein í eggjastokk-
um. Var því ákveðið í ársbyrjun 1978 að
reyna að stefna að því, að sem flestar þær
konur er greindust með krabbamein í eggja-
stokkum skyldu lagðar inn á kvensjúkdóma-
deild Landspítalans til nákvæms mats á út-
breiðslu sjúkdóms síns (stigunar), áður en með-
ferð yrði ákveðin. Jafnframt var þá ákveðið
að stigun sjúkdóms og aðgerðum skyldi sinnt
á kvensjúkdómadeild Landspítalans, en ytri
geislun og lyfjameðferð af starfsfólki geisla-
deildar. Ákvörðunartaka um meðferð og
síðan eftirlit var hins vegar sameiginlegt verk-
efni deildanna.
Gekk þróun þessara mála mun hraðar og
betur en við þorðum að vona og ber að þakka
kollegum hversu vel þeir brugðust við þessari
miðstýringarviðleitni. Aðaláherslan var síðan
lögð á breytta og um leið samhæfða meðferð
hjá sjúklingum með sjúkdóminn á stigi III og
IV, enda horfur þess hóps mjög slæmar.
Fjallar grein þessi um árangur þessarar við-
leitni.
INNGANGUR
Krabbamein í eggjastokkum er nú fimmta
algengasta krabbameinstegundin hjá ís-
lenskum konum og um leið það algengasta
í kynfærum kvenna.
Á árunum 1976 til 1980 var árlegt nýgengi
sjúkdómsins 14,7 á hverjar 100.000 konur(1.3).
Tafla I sýnir tíðni krabbameins í eggjastokkum
Tafla 1. Cancer ovarii greint á íslandi á árunum
1955-1980.
Tíðni miðuð
Árabil Fjöldi við 100.000 konur
1955-59 .................... 52 12.2
1960-64 .................... 64 13.9
1965-69 .................... 66 12.8
1970-74 .................... 73 13.3
1975-79 .................... 84 13.8
1980 ....................... 22 16.8
1955-1980 361 13.4
Tíðnitölur reiknaðar eftir íslenskum staðli (Krabbameins-
skrá íslands).
Tafla IA. Figo stigun á krabbameini 1 eggjastokkum.
Stig 1
I A Vöxtur bundinn við annan eggjastokk.
1 B Vöstur í báðum eggjastokkum.
I C 1 A/I B + vökvi í kviðarholi.
Stig II
II A Vöxtur og/eða meinvörp 1 legbol og/eða eggja-
leiðara.
II B Vöxtur í önnur líffæri eða vefi 1 mjaðmar-
grindinni.
II C II A/II B + vökvi í kviðarholi.
Stig 111
Vöxtur í eggjastokk með meinvörpum í kviðarholi.
Stig IV
Vöxtur í eggjastokk með meinvörpum utan kviðar-
hols, t.d. vökvi í fleiðruholi.