Læknablaðið - 15.12.1983, Side 70
372
LÆKNABLADID
hjá íslenskum konum á árabilinu 1955 til 1980,
reiknað eftir íslenskum staðli (2, 3), og hefur
tíðni þessa sjúkdóms farið hægt vaxandi und-
anfarin ár. Fimm ára lifitími á fyrrnefndu
árabili hefur legið á bilinu tæplega 20 til 35 %
(2), og hefur farið hægt hækkandi. Eru tölur
þessar í samræmi við 5 ára lifitíma hjá öðrum
pjóðum (4).
Ástæða þessara lélegu batahorfa sjúklinga
með krabbamein í eggjastokkum, er sú, að 60
til 70 % þeirra hafa útbreiddan sjúkdóm við
greiningu, stig III og IV (5, 6).
EFNIVIÐUR
Á þriggja ára tímabili, 1978 til 1980, greindust
á íslandi 54 konur með krabbamein í eggja-
stokkum. Af þeim komu 38 eða 71 % til
meðferðar og/eða eftirlits á kvennadeild og
geisladeild Landspítalans. Hvað hinar 16 kon-
urnar varðar, þá var í langflestum tilvikum
haft samráð lækna deildanna vegna með-
ferðar.
Sjúklingarnir voru flokkaðir samkvæmt
F.I.G.O. stigun, tafla IA. Rétt er að undirstrika,
að vökvi í kviðarholi getur verið til staðar í
öllum fjórum aðalstigum sjúkdómsins. Ef sjúk-
lingar voru með útbreiddan sjúkdóm í kvið-
arholi og vökvasöfnun í brjóstholi, þá voru
þeir flokkaðir í IV. stig.
Tafla II sýnir skiptingu þessara 54 sjúklinga
eftir stigum. Eins og fram kemur í töflunni þá
eru 37 eða 69 % þeirra með útbreiddan
sjúkdóm (stig III/IV) við frumgreiningu. Þrír
sjúklinganna höfðu »Borderline malignancy«
og sjást þeir aðgreindir frá I. stigs æxlum í
töflunni. Eitt dysgerminoma greindist á I. stigi
Tafla II. Cancer ovaríi greint á íslandi á 3 ára
tímabili 1978-80. Fimmtíu og fjórir sjúklingar er
greindust á íslandi á áranum 1978-80 flokkadir eftir
stigi sjúkdóms. Jafnframt er getid aldursdreifingar í
hverju stigi og medalaldurs vid greiningu.
Stig i Fjöldi sj. % Stig 11 Fjöldi sj. % Stig III Fjöldi sj. % Stig IV Fjöldi sj. %
10 19 4 7 14 26 23 43
(3) (5)
Aldur
12-69 ár 52-74 ár 46-74 ár 50-87 ár
Meðalaldur 45 ár 59 ár 60 ár 68 ár
Prír sjúklingar í I. stigi höfðu æxli af »Borderline«-gerð.
og carcinoid æxli hjá einum sjúklingi á III.
stigi.
Ekki er gerður greinarmunur á vefjagerð
æxlanna að öðru leyti né sérhæfingu æxlis-
frumnanna, enda liggur hún ekki fyrir í svörum
meinafræðinga frá þessu tímabili.
Aldursdreifing hóþsins við greiningu var frá
12 ára aldri til 87 ára. Meðalaldur sjúklinga
með krabbamein á I. stigi var lægstur, eða 45
ár, en hæstur hjá IV. stigs sjúklingum, eða 68
ár.
Til samanburðar við þennan þriggja ára
hóp, voru tekin saman tvö aðliggjandi 3 ára
tímabil, árin 1972-74 og 1975-77. Fundin voru
og farið yfir gögn allra sjúklinga, sem greind-
ust með krabbamein í eggjastokkum sam-
kvæmt Krabbameinsskrá íslands á þessum
tímabilum.
Upplýsingar voru síðan unnar úr sjúkra-
skrám sjúkrahúsanna, vefjagreiningasvörum
rannsóknastofu Háskólans og skýrslum frá
Hagstofu íslands. Á grundvelli þessara gagna
var sjúklingum raðað í flokka eftir eðli og
útbreiðslu sjúkdómsins og reyndist unnt að
stiga alla sjúklingana eftir F.I.G.O. stigun utan
eins, er greindist á fyrra tímabilinu (tafla III).
Athyglisvert er að á fyrra tímabilinu 1972-
1974, eru aðeins 50% sjúklinganna á III/IV
stigi og 55 % þeirra síðara tímabilið 1974-77.
Á tímabilinu 1978-80 voru hins vegar 69 %
sjúklinganna á stigi III/IV eins og að framan
greinir.
Þessar tölfræðilegu upplýsingar er vart
hægt að meta á annan veg en þann, að
nákvæmni greiningar sé mun betri á síðasta
tímabilinu en þeim tveim fyrri.
Rétt er að taka fram að 5 ára lifitími
sjúklinga, er greindust á árunum 1972-74 og
1974-77, var í báðum tilvikum sá sami, eða
35 %.
Á fyrra tímabilinu greindust 18 sjúklingar
með útbreiddan sjúkdóm (stig III/IV), en á því
síðara 28 (mynd 1). Meðallifitími í báðum
hópunum er sá sami, eða 7 mánuðir og enginn
sjúklinganna nær 5 ára lifitíma frá greiningu.
Peir 5 sjúklingar sem lengst lifðu í þessum
tveim hópum, höfðu fengið geislameðferð á
kviðarholið og/eða Treosulfan eftir aðgerðina.
Árangur meðferðar árin 1978-80
Þeim 54 sjúklingum er greindust með krabba-
mein í eggjastokkum á þriggja ára tímabilinu
1978-80 hefur öllum verið fylgt eftir og nær
uppgjör þetta til ársloka 1981. Fyrirhugað er