Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1988, Page 27

Læknablaðið - 15.05.1988, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 189-210 189 Tryggvi Ásmundsson, Hrafnkell Helgason Ég vildi ekki láta menn fara þekkingarlausa út Viðtal við prófessor Jón Steffensen Inngangur Á 75 ára afmælishátíð Læknafélags Reykjavíkur barst í tal milli okkar Árna Kristinssonar, að gaman væri að læknafélögin beittu sér fyrir því, að tekin yrðu viðtöl við roskna kollega og raddir þeirra geymdar á segulböndum til framtíðarinnar. Við ræddum strax hugmyndina við Kristján Baldvinsson formann L.R. og Þorvald Veigar Guðmundsson formann L.í. Strax í næstu viku fengum við bréf frá Þorvaldi Veigari þar sem vjð, ásamt Þórarni Guðnasyni, vorum skipaðir í nefnd til að hrinda málinu í framkvæmd. Langan tíma tók að útvega heppileg upptökutæki. Þegar þau loks fengust var prófessor Jón Steffensen efstur á lista yfir þá kollega sem ræða skyldi við. Hann varð prófessor við Læknadeild Háskóla íslands árið 1937 og gegndi því embætti til 1972, og hafa fáir kennt þar lengur. Fyrstu 20 árin kenndi hann líffærafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, en eftir það eingöngu líffærafræði. Þess má geta að þau fræði sem prófessor Jón Steffensen kenndi einn í 20 ár kenna nú þrír prófessorar, sex dósentar, sex lektorar og auk þeirra allmargir stundakennarar. Auk kennslu rak hann umsvifamikla rannsóknastofu í lífeðlis- og lífefnafræði í 32 ár og stundaði um leið mikla vísindavinnu. Starfsþrek prófessors Jóns hefur því verið með ólíkindum, en ekki virðist hann hafa beðið tjón á líkama eða sál af of miklu vinnuálagi. Hann ber sín 82 ár með afbrigðum vel. Við Hrafnkell Helgason, yfirlæknir á Vífilsstöðum, áttum viðtal það sem hér fer á eftir við prófessor Jón á fallegu heimili hans að Aragötu 3 í Reykjavík dagana 27. desember 1986 og 28. febrúar 1987. Spumingar okkar Hrafnkels eru skáletraðar, en svör Jóns með venjulegu letri. Tryggvi Ásmundsson Þú sest í lœknadeild 1924? Já. Ég kem þar um haustið, fetaði í fótspor föður míns. Annars hafði ég frekar hugsað mér að fara í náttúrufræði. Maður hafði drukkið í sig dálítið af henni frá Stefáni Stefánssyni, skólameistara á Akureyri, en hann hafði grasatúra. Sá síðasti var seinni veturinn minn í gagnfræðaskólanum, en þá fór hann í grasaferðir með okkur í nágrenni Akureyrar. Eftir það safnaði ég grösum í mörg ár og líka eftir að ég var orðinn læknir. Það sem fældi mig frá því að fara í náttúrufræði var að ég vildi ekki verða kennari, þó að þar hafnaði ég að lokum án þess að hafa eiginlega ætlað mér það hlutverk í lífinu. Allavega byrjaði ég þarna í læknadeildinni. Kennslustofurnar í fyrsta hlutanum voru í Alþingishúsinu og þar var okkar bækistöð með munnlega kennslu. Krufningar • höfðu verið í svokölluðu Fjósi Halldórs Friðrikssonar sem þá var næsta hús við Alþingishúsið. Þetta voru ekki sem heppilegastir tímar að því leyti, að Stefán Jónsson dósent, sem hafði kennt pathologiu og histologiu, var nýlega hættur störfum hér á landi og fluttur til Danmerkur. Guðmundur Hannesson kenndi aldrei smásjárskoðun og Níels Dungal var þá í undirbúningsnámi til að taka við sinni stöðu. Pathologiuna kenndi þá Guðmundur Þessa mynd af Jóni Steffensen teiknaði Guðmundur Bjarnason.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.