Læknablaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
191
tvisvar í Laugarnesspítala og skoðuðum
holdsveikisjúklinga. Þeir voru nokkrir, en ég man
ekki hve margir.
Manstu nokkra skemmtilega sögu frá verunni í
deildinni?
Sú saga gekk að Jónas heitinn Sveinsson var í
tíma hjá Sæmundi og átti að tala um kamfóru.
Við vorum með þýska útgáfu af lyfjafræði. Svo
spyr Sæmundur hann upp í hverju kamfóran
leysist og þá svarar Jónas: »í öli«! (Öl = olía á
þýsku).
Að afloknu prófi hér heima ferð þú til Bergen á
fœðingarstofnun?
Já, á kvinneklinikken þar.
Og síðan til Kaupmannahafnar?
Já. Ég var mánuð í Bergen og fór síðan til
Kaupmannahafnar í gegnum Osló. Ég hafði
útskrifast í febrúarlok, gifti mig og við hjónin
fórum út saman. Þegar ég var búinn á
kvinneklinikkinni fórum við í hálfgert sumarfrí.
Við fórum af í Harðangursfirðinum í Voss og
tókum svo járnbrautina aftur eftir viku og
héldum áfram til Hafnar. Þar var ég fram til
hausts og tók svona sína ögnina af hverju bæði í
medicin og kirurgiu, var t.d. mánð á Blegdam
hospital sem var sóttvarnaspítali. Ég var búinn að
ráða mig á Hvammstanga sem staðgengil fyrir
Jónas Sveinsson um haustið. Ætli ég hafi ekki
komið á Hvammstanga í september og Jónas fór
þá til Vínar í framhaldsnám. Hann kom aldrei
aftur á Hvammstanga, heldur fór á Blönduós. Ég
var þarna lengur en ég hafði ætlað mér, var um 20
mánuði í Miðfjarðarhéraði í Vestur
Lceknisbústaðurinn og sjúkraskýlið á Hvammstanga
árið 1932.
Starfsmenn og Ijósmæðranemar Kvinneklinikken í Björgvin I maí 1930. Yfirlœknir 1911-40, Lorentz Saverin Petersen
f. 1870 er fyrir miðri mynd. Honum á hœgri hönd eryfirljósmóðirin sem kenndi Jóni Steffensen að leggja töng. Jón
er annar frá hægri I öftustu röð.