Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1988, Síða 55

Læknablaðið - 15.05.1988, Síða 55
LÆKNABLAÐIÐ 215 Formaður svaraði því til, að stjórnin væri ósammála og því ekkert getað sent frá sér. FÍH hefði gert ramma um þessi samskipti og sent L.Í., og væri þar kominn góður grunnur fyrir frekari umræðu. Ólafur Mixa ræddi um kjaramál. Hann kvað erfitt að bera saman hópa lækna. Stefna læknafélaganna hefði verið samsvarandi laun fyrir lækna. Skipuð hefði verið samanburðarnefnd og hefði fyrir nokkrum árum tekist nokkuð að jafna kjörin, en nú hefði aftur dregið í sundur. FÍH hefði ályktað, þar sem fram kæmi tilraun til að bera saman kjörin og sýnt fram á umtalsverðan kjaramismun. Ályktunin hefði verið send L.í. og farið fram á, að hún yrði send samanburðarnefndinni, en það hefði ekki verið gert, þar sem hún hefði ekki komið saman. Spurningin væri því hvort stefna L.í. væri sú, að kjör lækna væru samsvarandi, og hvort samanburðarnefndin hefði verið lögð niður. Formaður sagði, að stefna L.í. væri óbreytt, en samanburðarnefndin hefði starfað um tíma og skilað af sér vorið 1986. Hefði niðurstaða hennar kallað fram ádrepur alls staðar að. Nauðsynlegt væri, að samninganefndir hefðu meira samstarf, en mikið vinnuálag væri á nefndunum fyrir og ekki á það bætandi. Spurningin væri, hvort rétt væri að ráða hagfræðing til L.í. eða einhvers konar samræmingarstjóra og hver væri þá fús að taka það verk að sér. Páll Þórðarson minnti á, að ýmislegt læki á milli nefndanna í gegnum hann. Högni Óskarsson fjallaði almennt um ársskýrsluna og benti á víðtækt starfssvið læknafélaganna. Það væri stéttarfélag, fagfélag og pólítískt afl. Hann saknaði betri umræðu um fagfélagsþáttinn. Almenningur heyrði mest frá læknum um kjaramálin, en það gæfi ranga mynd af starfi félagsmanna. Hann minnti á ályktun um prófessorsstöðu í heimilislækningum, þar sem lítið hefði þokast, og á ályktun um framhaldsmenntun á íslandi. Þetta sýndi, hvað læknafélögin hefðu lítil áhrif á læknakennslu, sem væri áhyggjumál, enda sæi hann engan prófessor sitja þennan aðalfund. Hann kvaðst ekki hafa neinar beinar tillögur, en læknafélögin þyrftu að fá meiri ítök í læknadeild. Hugsanlega væri það hægt með því að veita læknadeildinni rannsóknastyrki eða með því að fá fulltrúa á deildafundi. Formaður minnti á, að forseti læknadeildar hefði boðað forföll og varaforseti vafalaust upptekinn í bili. Hann benti á, að hinn faglegi þáttur væri að miklu leyti í höndum svæðafélaganna og heilbrigðisstofnana. Skúli G. Johnsen kvaðst taka undir með Högna, að læknismenntun hér hefði i raun aldrei tekið þeim breytingum, sem komið hefði verið á erlendis. Atli Dagbjartsson kvaðst ekki geta tekið undir, að læknafélögin stæðu fyrir námskeiði fyrir framhaldsmenntun lækna, þar sem þessi hún færi fram á sjúkrahúsum hér. Gísli G. Auðunsson spurði, hvort L.í. ætti nóga peninga. Nú þyrftu menn að greiða fyrir haustnámskeið og fleiri námskeið og spurningin væri, hvaða námskeið ættu að vera ókeypis. Hann spurðist fyrir um slysatryggingu lækna í sjúkrabifreiðum og í sjúkraflugi. Hann benti á þá erfiðleika, þegar heilsugæslulæknar úti á landi væru í kjarabaráttu. Hann minnti á ályktanir um prófessorsembætti í heimilislækningum og kvaðst bíða eftir því, að L.í. legðist á þetta mál með meiri þunga. Páll Þórðarson kvað sérstaka tryggingu vera fyrir hendi i sjúkraflugi, en sennilega væri hún heldur lægri en aðrar slysatryggingar heilsugæslulækna. Formaður sagði, að spurningin um ókeypis námskeið hefði aldrei komið upp áður. Halldór Halldórsson benti á nokkrar Ieiðir til að auka atvinnutækifæri lækna. Kandidatar gætu tekið að sér að skammta lyf á sjúkradeildum og stefna ætti að því, að læknar, sem hefðu náð sextugsaldri, hefðu minni vinnuskyldu með óbreyttum launum. Erfitt væri að fá sjúkraþjálfara á endurhæfingarstofnanir, ef til vill vegna ósættis þarna á milli eða vegna þess að Tryggingastofnun ríkisins borgi sjúkraþjálfurum of vel á stofu. Formaður kvað sjúkraþjálfara hafa vissar meiningar um starf endurhæfingarlækna á almennum stofnunum. Pétur Lúðvigsson kvað námskeiðskostnað hafa áður verið ræddan á aðalfundi. Lausir endar væru enn, hvað snerti stöðu L.í. í framhaldsmenntun og starf Náskeiðs- og fræðslunefndar hvað snerti viðhalds- og framhaldsmenntun. Ljóst væri, að læknafélögin ættu að eiga þarna að stóran hlut. Kostnaður við haustnámskeið væri eingöngu miðaður við kaffi og mat, meðan á námskeiðinu stæði. María Sigurjónsdóttir útskýrði afstöðu unglækna vegna kjarabaráttu heilsugæslulækna. Þeir væru oft þjakaðir af skuldum og stæðu í fjárfestingum, en uppsagnir heilsugæslulækna 1985 hefðu átt fullan stuðning FUL.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.