Læknablaðið - 15.05.1988, Qupperneq 56
216
LÆKNABLAÐIÐ
Reikningar
Því næst lagði Sveinn Magnússon fram reikninga
og skýrði. Tekjur af árgjöldum hefðu orðið hærri
en búist hefði verið við og hefði þar komið til
bæði betri innheimta og fleiri læknar. Páll
Þórðarson útskýrði ársreikning Ekknasjóðs.
Arinbjörn Kolbeinsson flutti skýrslu stjórnar
Domus Medica og lagði fram rekstrarreikning
stofnunarinnar.
Eggert Steinþórsson kvaddi sér hljóðs og rakti
sögu Domus Medica. Hann kvað nú vera komin
tímamót að því leyti, að nú hefði verið fengin
aðlæg lóð á horni Eglsgötu og Snorrabrautar og
nú þyrfti ákvörðun læknafélaganna. Stóri salur
hefði verið leigður út til eins árs og væri nú 9
mánaða umhugsunarfrestur til að ákveða
framhaldið. Ljóst væri, að læknafélögin vantaði
pláss og það besta fyrir Domus Medica væri, að
félögin leigðu salinn fyrir skrifstofur o.fl.
Spurningin væri, hvort ekki væri kjörið að koma
á fót félagsheimili lækna.
Páll Þórðarson gerði grein fyrir reikningum
Lífeyrissjóðs lækna. Raunávöxtun væri um 3.5%
og rekstur nú með nokkuð góðu móti.
Ályktanir
Frá L.í. hafði borist tillaga um áskorun á
heilrigðis- og tryggingamálaráðherra að leggja að
nýju fram frumvarp til læknalaga á næsta
Alþingi. Auk þess var tillaga um að skora á sama
ráðherra um að beita sér fyrir breytingum á
lögum um heilbrigðisþjónustu þannig, að
starfsemi heimilislækna utan heilsugæslustöðva
væri heimil til frambúðar.
í tillögum frá L.R. var gert ráð fyrir, að
læknafélögin komi sér upp fjölmiðlafulltrúa til að
Eggert Steinþórsson var kjörinn heiðursfélagi L.í.
auðvelda samskipti læknafélaganna og fjölmiðla
og hins vegar; að komið verði á fót staðalnefnd
læknafélaganna, sem geti fjallað um eða veitt
viðurkenningu á sviði heilsuræktar og aukinnar
hollustu; að skorað verði á læknadeild Háskóla
íslands að taka upp kennslu í stjórnunarfræðum
fyrir læknanema og varað skuli við því
vandræðaástandi, sem skapast hefur í rekstri
sjúkrahúsa undanfarna mánuði með lokun deilda
og samdrætti í rannsóknavinnu, og skorað er á
stjórnvöld að finna lausn á því.
Þá var kynnt tillaga FUL, þar sem bent er á, að
hinar víðtæku sumarlokanir sjúkrahúsdeilda
komi sér mjög illa fyrir unglækna í
kandidatsnámi. Fundurinn skori því á
heilbrigðisráðherra og stjórnir sjúkrahúsa að
neyta allra ráða til að draga úr þessum
sumarlokunum.
Kvaddi Ólafur Ólafsson sér þá hljóðs og kvað tvo
þingmenn hafa getið þess við sig, að í
athugasemdum L.í. við læknalagafrumvarpið
hafi verið lagt til að þurrka út áhrif
landlæknisembættisins á lyf.
Því næst var skipað í þrjá starfshópa, sem fjalla
skyldu um tillögurnar og var fundi haldið áfram
næsta dag.
Framsögu fyrir fyrsta hópi hafði Halldór
Jónsson. Starfshópurinn lagði til að tillaga frá
stjórn L.í. um, að aðalfundur skori á ráðherra
heilbrigðis- og tryggingamála að leggja að nýju
fram frumvarp til læknalaga á næsta Alþingi yrði
samþykkt óbreytt. Var það samþykkt samhljóða.
Varðandi tillögu nr. 2 frá stjórn L.í. um, að
aðalfundurinn skoraði á heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra að beita sér fyrir
breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu,
þannig að starfsemi heimilislækna utan
heilsugæslustöðva verði heimil til frambúðar,
lagði starfshópurinn til, að við bættist »enda
verði hér um að ræða stöðvar með afmarkað
þjónustusvæði. Nýliðun fari fram að
undangengnu hæfnismati«. í greinargerð með
tillögunni væri ávallt talað um
heimilislæknastöðvar, enda væri einyrkjastarf
úrelt fyrirbrigði. Ekki væri hægt að horfa fram
hjá því, að á höfuðborgarsvæðinu, þar sem fyrst
og fremst yrði um heimilislækningar utan
heilsugæslustöðva að ræða, hefðu verið
skipulögð afmörkuð þjónustusvæði. Engin
ákvæði um hæfnismat nýliða í
heimilislæknastéttinni utan heilsugæslustöðva
hefðu verið fyrir hendi.