Læknablaðið - 15.04.1990, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ
213
Tafla I. Bakteríutegundir og sýklalyf sem notuö eru til næmisprófa á sýkladeild Landspítalans. Svigar tákna
aukalyf. Kfþ=Kefalóþín, Kfx=Kefúroxím, Kfs=Keftasidím.
Pen Amp Píp Kfþ Kfx Tet Gen Ery Kli Kló Súl Trí Nít Síp Önnur lyf
Þvagsýni
Gr. neikv. stafir X (x) X (X) (X) X X X (x) Mesillínam, (*)
Enterókokkar X X X X X Vankómýsín
Klasakokkar X X X X X Meþisillín
Önnur sýni
Klasakokkar X X X X X Meþisillín
Keöjukokkar X X X X X X
H. influenzae X X X X X X
Gr. neikv. stafir X (X) X X X X X (X) Netilmísín, (*)
Pseudómónas X X (X) Kfs, Net, Tób.
N. Gonorrhoea X X X Spektínómýsín
Loftfælur X X X X X Metrónídasól
*) Kefótaxím og Keftríaxón.
mætti í flestum tilvikum nota annað hvort
tnmetóprím eða súlfónamíð (4). Aukaverkanir
af völdum súlfahlutans eru algengar einkum
hjá eldra fólki. Ef um fjölónæman stofn
er að ræða er bætt við næmisprófum fyrir
sömu lyfjum og gert er fyrir Gram neikvæðar
bakteríur annars staðar en í þvagi.
A enterókokkum eru gerð næmispróf fyrir
ampisillíni, erýþrómýsíni, trímetóprími,
nítrófúrantóíni, tetrasýklíni og vankómýsíni,
en á klasakokkum eru prófuð lyfin penisillín,
meþisillín, erýþrómýsín, trímetóprím,
nítrófúrantóín og gentamísín.
2. Nœmispróf á bakteríum úr öðrum
sýkingastöðum en þvagi. Klasakokkar.
Gerð eru næmispróf fyrir penisillíni,
meþisillíni, erýþrómýsíni, klindamýsíni
og gentamísíni. A kóagúlasa neikvæðum
klasakokkum er stundum bætt við næmisprófi
fyrir vankómýsíni. Meþisillín er fulltrúi fyrir
penisillínasaþolin penisillín (kloxasillín,
díkloxasillín og flúkloxasillín) og fyrstu
kynslóðar kefalóspórín (kefalóþín, kefradín
og kefalexín). Ef klasakokkur er næmur fyrir
meþisillíni er hann einnig næmur fyrir þeim
lyfjum sem það er fulltrúi fyrir (5). í dag
mynda 90-95% íslenskra Staphylococcus
aureus stofna /(-laktamasa (penisillínasa)
og eru þvf ónæmir fyrir penisillíni og
breiðvirkum penisillínum (ampisillín,
amoxýsillín, pívampisillín, bakampisillín,
karbenisillín og píperasillín).
Keðjukokkar. Gerð eru næmispróf
fyrir penisillíni, ampisillíni, kefalóþíni,
erýþrómýsíni, trímetóprími og súlfónamíði.
Kefalóþín er fulltrúi fyrir fyrstu kynslóðar
kefalóspórín (kefradín og kefalexín).
Rétt er að geta þess að enterókokkar
(Streptococcus faecalis, S.faecium, S.
durans og S. avium ) hafa alltaf lélegt
næmi fyrir penisillíni nema það sé notað
ásamt amínóglýkósíði (streptómýsín
eða gentamísín) og þeir eru algerlega
ónæmir fyrir kefalóspórínsamböndum.
Súlfónamíð verkar ekki heldur á enterókokka.
Keðjukokkar aðrir en enterókokkar eru nær
alltaf næmir fyrir penisillíni sem er kjörlyf
fyrir sýkingar af þeirra völdum. Kjörlyf
fyrir enterókokkasýkingar er ampisillín
(penisillín og gentamísín saman ef um er
að ræða hjartaþelsbólgu). A Islandi eru [3-
hemólýtískir streptókokkar enn alltaf næmir
fyrir erýþrómýsíni, en ónæmi gegn því er
vaxandi í nágrannalöndum okkar.
Haemophilus influenzae. Gerð eru næmispróf
fyrir ampisillíni, kefúroxími, erýþrómýsíni,
klóramfeníkóli, súlfónamíði og trímetóprími.
Ampisillín er fulltrúi fyrir ampisillínesterin