Læknablaðið - 15.04.1990, Page 54
224
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 224-5
Sigurður H. Richter, Matthías Eydal, Karl Skírnisson
SNÍKJUDÝR í MÖNNUM Á ÍSLANDI FUNDIN
VIÐ RANNSÓKNIR Á ÁRUNUM 1973-1988
ÚTDRÁTTUR
Á árunum 1973-1988 voru á Tilraunastöð
Háskólans í meinafræði að Keldum rannsökuð
3922 sýni úr 2528 sjúklingum sem grunur
lék á að gætu verið með innri sníkjudýr.
Um það bil 99% sýnanna voru saursýni. í
234 sjúklingum (9,3%) fundust ein eða fleiri
snfkjudýrategundir. Alls fundust að minnsta
kosti 24 tegundir sníkjudýra í sýnunum.
INNGANGUR
Á Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
að Keldum hefur allt frá árinu 1973 farið
fram leit að og greining á sníkjudýrum
manna. í þessari grein eru teknar saman
helstu niðurstöður þeirra rannsókna á innri
sníkjudýrum manna sem stundaðar hafa verið
að Keldum á árunum 1973-1988.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
í þessum rannsóknum hefur fyrst og fremst
verið leitað að ummerkjum um innri sníkjudýr
í saursýnum. Sýnin hafa einkum verið úr
fólki sem grunur hefur leikið á að gæti verið
með sníkjudýrasýkingar. Þó hafa einnig
verið greind sníkjudýr sem komið hafa úr
meltingarvegi sjúklinga eða fundist í vefjum
þeirra eða blóði. Sýnin eru send til greiningar
frá sjúkrahúsum eða einstökum læknum. Hér
er því ekki um tilviljanakennt úrtak að ræða
heldur eru sýni oftast send vegna gruns um
sníkjudýrasýkingar.
Sú aðferð sem mest hefur verið notuð
við rannsókn á saursýnunum er svonefnd
formalín-eter botnfelling (1) og upp á
síðkastið formalín-etýlasetat botnfelling (2).
Botnfallið er joðlitað fyrir smásjárskoðun. Ef
grunur leikur á Cryptosporidium sýkingu er
beitt Ziehl-Neelsen litun á botnfallið (3).
Þegar leitað er að frumdýrum er leitað að
Frá Tilraunastöö Háskólans I meinafræöi aö Keldum.
Ár
Mynd 1. Fjöldi sýna úr mönnum í sníkjudýrarannsókn
aö Keldum árin 1973-1988.
Ár
Mynd 2. Fjöldi einstaklinga í sníkjudýrarannsókn aö
Keldum 1973-1988.
þolhjúpuðum frumdýrum (cysts) í saur
sjúklingsins. Þegar leitað er að vísbendingum
um orma í meltingarvegi er í langflestum
tilvikum leitað að eggjum ormanna í saumum
og í stöku tilvikum er leitað að lirfum.
Oft er aðeins eitt saursýni skoðað en beinist
leitin sérstaklega að frumdýmm eru yfirleitt
skoðuð tvö til þrjú saursýni sem tekin em
með nokkurra daga millibili til að auka líkur