Læknablaðið - 15.09.1990, Side 41
LÆKNABLAÐIÐ
359
Meðalrismál eflir aldri
Börn sem væta rúm
Mynd 3. Meðalrismál í einni viku, táknað með punkti Mynd 5. Hlutfall þeirra úr hverjum árgangi sem væta rúm
fyrir hvem einstakling og aðfallslínu sem dregin er í oft, stundum eða sjaldan.
minnstu femingsfjarlægð frá þeim.
30
Erfitt aö koma barni i svefn
■ % Erfitt aö koma í svefn
Mynd 4. Hlutfall svara þar sem forráðamaður bams svarar
»oft« spumingunni: »Er erfitt að koma baminu í svefn á
kvöldin?«. Flokkað eftir aldri bams.
7%) vætir rúm fram á unglingsár. I öllum
aldurshópum er það um helmingi algengara
meðal drengja en stúlkna að væta rúm.
Tannagnístran. Tannagníst (bruxism) kemur
fyrst fyrir hjá um 3% bama á þriðja aldursári,
en tíðni þess eykst með aldri og er algengast á
aldrinum 5-7 ára, en þá gnístir um fimmtungur
bama tönnum í svefni stundum eða oft. Eftir
þennan aldur minnkar tíðnin í 9% hjá 10 ára
bömum og 3% hjá 12 ára.
Tal í svefni. Af öðmm fyrirbærum sem
tengjast svefni má nefna að 6,3% bama tala
oft upp úr svefni og 19,9% stundum. Tíðni
er nokkuð jöfn eftir þriggja ára aldur. Meðal
unglinga er tfðni nokkuð minni, um 4% telja
sig tala oft upp úr svefni.
Svefnganga. Samkvæmt svörunum ganga böm
ekki í svefni fyrir sex ára aldur. Eftir þann
aldur kemur svefnganga fyrir hjá bömum.
Aðeins í einu tilfelli var þó svarað að hún
kæmi oft fyrir, en sjaldan eða stundum
hjá 12,5% bama. Meðal unglinga fer tíðni
svefngöngu lækkandi með aldri og meðal
eldri unglinga kemur svefnganga sjaldan eða
stundum fyrir hjá aðeins 5% hópsins.
Hrotur. Hrotur koma stundum fyrir hjá 10,6%
bama en oft hjá 1,1%. Tíðni á hrotum eykst
síðan með aldrinum og hjá unglingum 18-20
ára hrýtur þriðjungur hópsins stundum eða
oft, svipað og hjá fullorðnum (8). Athugað
var hvort tíðni á hrotum væri meiri hjá þeim
unglingum sem vom byrjaðir í sambúð þar
sem vænta mátti að þeir fréttu frekar um
hrotumar, svo var þó ekki.
Andfœlur. Andfælur (night terrors), það að
vakna upp af djúpum svefni og reka upp
skerandi vein án þess að um martröð hafi
verið að ræða er eitt af þeim fyrirbærum sem
tengjast svefni hjá bömum. Þetta kemur mest
fyrir hjá yngstu bömunum. Það er þó hvergi