Læknablaðið - 15.09.1990, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ
371
þama til að kynnast þessum almennu klínísku
rannsóknum og voru í launuðum hlutastöðum.
- Bjarni varð sérfræðingur í
lækningarannsóknum. Hann hefur verið
hjá þér sem aðstoðarlæknir en síðar komið
sem sérfræðingur.
Hann var búinn að vera hjá mér frá
1943-46, svo fór hann í framhaldsnám
til Kaupmannahafnar og var meðal
annars á Biokemisk Institut og Medicinsk
Laboratorium. Hann var þama í tvö ár og eftir
það fékk hann sérfræðingsviðurkenningu og
kom aftur til mín 1949.
- Hvað starfræktirðu rannsóknastofuna
lengi á þennan hátt í Háskólanum ?
Fyrir utan þessar klínísku rannsóknir, sem
ég er búinn að tala um fyrir lækna starfandi
í bænum, rannsakaði ég alkóhólinnihald í
blóði fyrir lögregluna. Jóhann Sæmundsson
læknir sá um þær rannsóknir fyrst í kringum
1940, ég man nú ekki hvað lengi. Hér höfðu
fram að því ekki verið gerðar neinar sérstakar
athuganir á þeim sem óku undir áhrifum
áfengis, en svo voru sett lög um leyfilegt
alkóhólmagn í blóði. Jónatan Hallvarðsson
var þá sakadómari og fékk Jóhann til að
gera svokallaðar alkóhólprufur. I Danmörku
og víðar var fólk látið ganga eftir striki og
læknir fenginn til að skoða það. Auk þess
var mælt alkóhólmagnið í blóði. Jóhann var
í nevrólógíu og ég held að Jónatan hafi þess
vegna fengið hann til þess að kynna sér þessi
mál og taka að sér læknisfræðile^u hliðina
við skoðun á þessum mönnum. Eg byrjaði á
alkóhólrannsóknum upp úr 1940 og það vom
náttúrulega miklu »lúkratívari« rannsóknir,
þegar »delinkventar« eða lögregla á að borga
og þetta voru eiginlega miklu auðteknari
peningar.
- Sástu um alkóhólrannsóknirnar alla tíð á
meðan þú rakst rannsóknastofuna ?
Já, og svolítið lengur. Þegar ég hætti sem
prófessor, hætti ég rekstri rannsóknastofunnar
en hélt alkóhólrannsóknunum áfram í dálítinn
tíma þar til Þorkell Jóhannesson tók við þeim.
- Þú kenndir alveg fram til vorsins 1971.
Já, þá var sett ný reglugerð sem kom í veg
fyrir að ég gæti kennt áfram öðrum en þeim
sem voru innritaðir eftir gömlu reglugerðinni.
Það var ómögulegt fyrir einn mann að kenna
hvort tveggja, nemendur voru orðnir svo
margir. Og svo var annað, að ég fékk lausn
frá embætti og Hannes Blöndal var skipaður
kennari meðan hann var enn úti.
Mynd 6. Glös og grind fyrir Widals próf, til aö prófa fyrir mótefnum gegn taugaveikibakteríunni og öörum
salmonella sýklum meö agglutination, einnig frá Laugarnesspítala. (Safnnr.: NS-413).