Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1991, Síða 44

Læknablaðið - 15.01.1991, Síða 44
36 LÆKNABLAÐIÐ var Borgarspítalinn í Fossvogi að taka til starfa í nýju húsnæði. Borgarspítalinn var byggður upp sem deildaskiptur spítali og hefur frá byrjun verið aðalslysamóttökuspítali landsins og spítali fyrir bráða sjúkdóma. Byggt var við slysadeild til að anna þessari þjónustu enn betur. Þar var einnig stofnuð sérstök taugaskurðlækningadeild og bæklunarskurðdeild í tengslum við slysadeild. Nýbyggingar spítalans á síðustu árum hafa verið vegna öldrunarlækninga. A Grensásdeild, sem starfar í tengslum við Borgarspítala, er fullkomin endurhæfingardeild. Þar hefur á tímabilinu verið byggð fullkomin þjálfunarsundlaug og þar er nú að hefjast bygging sérstaks húsnæðis fyrir fjölfatlaða. Landakotsspítali, sem var einkaspítali fram til 1976, er rfkið keypti hann, hefur verið rekinn sem sjálfseignarstofnun og er þar rekin sérhæfð þjónusta með sama sniði og áður. Þar er eina augnlækningadeild landsins. Hefur hún nýlega verið endurbætt og göngudeildaraðstaða stækkuð. Síðustu ár hafa ítrekað farið fram umræður um frekari verkaskiptingu og aukna samvinnu sjúkrahúsanna á Reykjavíkursvæðinu og er ekki vitað hver niðurstaðan verður af þeim viðræðum. Af hálfu ráðuneytisins hefur ávallt verið kappkostað að sjúkrahúsin á Islandi gætu veitt eins fullkomna sérfræðiþjónustu og hægt er miðað við fjármagn og mannafla, en rekstur sjúkrahúsa er dýr og tækjavæðing fjármagnsfrek. Því hefur ekki ávallt verið hægt að sinna endumýjun sem skyldi eða afla nýrra tækja. Þau verkefni, sem íslenskar heilbrigðisstofnanir hafa ekki getað sinnt, hafa verið flutt til annarra landa og hafa sjúklingar síðustu ár einkum farið til Bretlands, þar sem Tryggingastofnun ríkisins hefur haft sérstaka samninga. Hafi það verið álit sérfræðinganefndar, að nauðsyn bæri til að sjúklingar fengju læknishjálp erlendis, hafa allir fengið þá læknishjálp á kostnað almannatrygginga. Sé litið yfir sjúkrahúsin í heild má segja, að fimm sjúkrahús hafi sérstöðu, þ.e. Ríkisspítalar, Borgarspítali, Landakot, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Sjúkrahús Akraness. Þessi sjúkrahús hafa samanlagt um 2000 sjúkrarúm. Árlega vistast á þessum sjúkrahúsum um 40 þúsund manns og aðgerðir eru um 26 þúsund. Tólf sjúkrahús á landsbyggðinni hafa aðstöðu til skurðaðgerða. Þar eru 500 sjúkrarúm sem vista á ári um 5000 sjúklinga og þar eru gerðar um 4000 aðgerðir árlega. I þriðja flokknum koma hjúkrunarheimili, þar sem ekki eru gerðar neinar skurðaðgerðir og er þar um að ræða um 20 hjúkrunarheimili með um 980 rúmum. í vaxandi mæli hafa litlu sjúkrahúsin á landsbyggðinni tekið við hjúkrunarvistun aldraðra, þrátt fyrir mikla uppbyggingu á hjúkrunarrýmum almennt. Tvær endurhæfingarstofnanir, sem báðar eru einkastofnanir, verður að nefna, Reykjalund og Heilsuhæli Náttúrulækningafélags íslands (NLFÍ) í Hveragerði. Á Reykjalundi var upphaflega umönnun og endurhæfing berklasjúklinga. Nú er þar alhliða sjúkra- og iðjuþjálfun og aðstaða öll hin besta. Á Heilsuhæli NLFI var upphaflega gert ráð fyrir lækningu með mataræði og böðun en nú er þar margháttuð endurhæfing fyrir sjálfbjarga fólk. Til loka áttunda áratugarins var meðferð áfengissjúkra aðallega tengd geðdeildum en einnig lyflæknisdeildum. Fyrir rúmum 10 árum voru Samtök áhugamanna um áfengisvanda stofnuð í kjölfar lækningaferða nokkur hundruð áfengissjúklinga til Bandaríkjanna. Meðferðarstofnanir með því sniði, sem þar eru reknar, voru settar á stofn og síðar byggð ný meðferðarstofnun að Vogi í Reykjavík. Endurhæfingarstofnunum var komið á fót að Sogni í Ölfusi og Staðarfelli í Dölum. Alls eru nú 120 rými vegna áfengissjúkra á vegum SÁÁ, 60 á Vogi og 30 á hvorri endurhæfingarstofnun. Eins og áður er rekin sérstök deild áfengissjúklinga og göngudeild á geðdeild Ríkisspítala. Öll meðferð áfengissjúklinga hefur því gjörbreyst á síðasta áratug. 4. STOFNANIR RÁÐUNEYTISINS 4.1 Tryggingastofnun ríkisins: Tryggingastofnun ríkisins hefur starfað frá 1936. Lög um almannatryggingar hafa verið endurskoðuð í heild 1946, 1956 og síðast

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.