Læknablaðið - 15.08.1993, Síða 20
228
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla. Aldursdreifing einstaklmga í úrtakshópum og fjöldi með kjarnamólefni gegn lifrarbólguveiru B
Samanburöarhópur Áfengissjúklingar Stunguefnaneytendur
Aidur Fjöldi Jákv. {%) Jákv. Fjöldi Jákv. (%) Jákv. Fjöldi Jákv. (%) Jákv.
15-24 ...................... 155 1 (0.6) 62 1 (1.6) 7 4 (57.1)
25-34 ...................... 202 5 (2.5) 119 7 (5.9) 21 5 (23.8)
35-44 ...................... 204 3 (1.5) 95 4 (4.2) 6 2 (33.3)
45-54 ...................... 160 7 (4.4) 48 0 (0.0) 0 0 (0.0)
55-64 ...................... 163 8 (4.9) 17 0 (0.0) 0 0 (0.0)
>64......................... 216 14 (6.5) 4 1 (25.0) 0 0 (0.0)
Alls 1100 38 (3.5) 345 13 (3.8) 34 11 (32.4)
Fjöldi sýna
350 >
300-
250-
200-
1988 1989 1990 1991
Mynd 1. Fjöldi innsendra sýna til
lifrarbólguveiru B rannsóknar.
koma sýni undir nafnleynd og án nokkurra
upplýsinga.
Til athugunar á algengi fyrri sýkinga af
völdum lifrarbólguveiru B voru mæld
mótefni gegn kjarna veirunnar, það er
and- HBC. Rannsökuð voru 1100 sýni frá
einstaklingum í úrtaki sem annars vegar var
fengið frá Hjartavernd (758 sýni)'en þangað
kemur fólk, venjulega hraust og á ýmsum
aldri, til almennrar læknisrannsóknar og
hins vegar frá Rannsóknastofu Háskólans
í veirufræði (342 sýni) en öllum sýnum
þar sem meðfylgjandi upplýsingar gáfu
til kynna lifrarsjúkdóm var sleppt. Á töflu
sést fjöldi og aldursdreifing einstaklinga í
rannsókninni. Hluti sýnanna frá Hjartavernd
var frá einstaklingum í slembiúrtaki, sem
notað hefur verið til rannsókna á faraldsfræði
hjarta- og æðasjúkdóma hérlendis (89 sýni).
Voru þessir einstaklingar allir eldri en 55 ára.
Önnur sýni frá Hjartavernd voru frá fólki á
ýmsum aldri, sem kom til rannsóknar vegna
ábendingar læknis eða af eigin hvötum (669
sýni).
Til könnunar á algengi fyrri sýkinga af
völdum lifrarbólguveiru B meðal sprautufíkla
og áfengissjúklinga voru sýni frá SÁÁ að
Vogi, tekin árið 1990, rannsökuð. Annars
vegar voru athuguð 345 sýni frá sjúklingum
með sögu um áfengisneyslu eingöngu og hins
vegar 34 sýni frá sprautufíklum.
Til að meta staðtölulega marktækni var
kí- kvaðrat prófi beitt til að bera saman
algengi kjarnamótefna í hinum mismunandi
aldurshópum og einnig til samanburðar
á slembiúrtaki Hjartaverndar og annarra
hópa. I samanburði á algengi kjarnamótefna
hjá sjúklingahópum frá SÁÁ, það er
áfengissjúklingum og sprautufíklum,
og annarra hópa frá Hjartavemd og
Rannsóknastofu Háskólans í veimfræði
var samleitniprófi (Replicated Goodness of