Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1993, Qupperneq 22

Læknablaðið - 15.08.1993, Qupperneq 22
230 LÆKNABLAÐIÐ % Hlutfall einstaklinga -o- Stunguefnaneytendur og mynd 4. Marktækur munur reyndist á algengi fyrri lifrarbólguveiru B sýkingar innan hópsins eftir aldri (P< 0,05). Ekki var marktækur munur milli slembiúrtaks Hjartavemdar annars vegar og annarra sýna frá Hjartavernd og Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði hins vegar (P> 0,05). Algengi kjarnamótefna meðal sjúklinga, sem leggjast á áfengis- og fíkniefnameðferðardeild SAA að Vogi með sögu um áfengisneyslu eingöngu var ekki marktækt hærri en hjá einstaklingum í rannsóknahópi frá Hjartavernd og Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði. Af 345 sýnum frá áfengissjúklingum reyndust 13 (3,8%) hafa kjarnamótefni, en af 1100 sýnum frá Hjartavernd og Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði voru 38 (3,5%) með slfk mótefni. (GH = 0,08 < x2o,os[n = 3,841). Af þeim 34 sjúklingum sem hins vegar höfðu sögu um neyslu fíkniefna með sprautum voru 11 (32%) með kjarnamótefni, sem eru mjög marktækt fleiri en í hópnum frá Hjartavernd og Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði (G„=30,48 >x2o.oohi]=10,828) (sjá mynd 4 og töflu). UMRÆÐA Smit við nána snertingu og kynmök eða blóðblöndun en síður við fæðingu samrýmist þeim niðurstöðum að algengi fyrri sýkingar sé hverfandi fyrir 15 ára aldur en fari síðan hækkandi eftir aldri. Er algengi fyrri sýkingar og meginsmitleiðir lifrarbólguveiru B svipaðar Mynd 4. Algengi lifrarbólguveiru B kjarnamótefha eftir aldri í sýnum frá Hjartavemd og Rannsóknastofu Háskólans í veirufrœði og meðat stunguefnaneytenda. hérlendis og í N-Ameríku og N-Evrópu (2,6,10,11). Vegna eiginleika lifrarbólguveiru B að geta valdið þrálátum sýkingum er hætta á sýkingu við blóð- eða blóðhlutagjafir svo og meðal fíkniefnaneytenda sem nota sameiginlegar sprautur. Arið 1983 fór að bera á amfetamínneyslu hérlendis og jókst hún mjög fram til 1985 en hefur síðan verið svipuð eða jafnvel minnkað. Virðist 100-300 manna hópur sprauta sig reglulega með lyfinu, en að auki eru allmargir sem nota lyfið sjaldan. A árinu 1989 fór síðan lifrarbólguveira B að greinast ineðal sprautufíkla hérlendis (12). Um áramótin 1989-1990 greindust á Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði níu tilfelli sem öll munu vera afleiðing smits nokkrum vikum eða mánuðum áður í sprautufíklasamkvæmi senr kennt hefur verið við Hverfisgötu í Reykjavík. Eftir þennan tíma hafa nokkur lifrarbólguveiru B tilfelli greinst í hverjum mánuði meðal sprautufíkla og umgengnishóps þeirra. Eins og sést vel á mynd 3 eru flestir sem greinst hafa 15-40 ára enda er fíkniefnaneysla algengust á þessum aldri. Flestir þeirra sýktu eru sjálfir fíkniefnaneytendur en nokkuð er um að rekkjunautar þeirra sýkist einnig enda er náin snerting og kynmök meðal náttúrulegra smitleiða veirunnar. Mjög hátt algengi kjarnamótefna og þá fyrri sýkinga (32%) hjá sprautufíklum sem fara í ineðferð gefur til kynna mjög hraða og almenna útbreiðslu meðal þessa hóps. Hugsanlegt er þó að þeir

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.