Læknablaðið - 15.12.1994, Síða 74
580
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
íðorðasafn
Enn um framburð
Athugull lesandi vakti athygli
á bágum framburði sem stund-
um má heyra. Sérkennilegar
áherslur ákafra fréttamanna
verða gjarnan til þess að kyn-
sjúkdómur verður „kjinnsjúk-
dómur". Undirritaður hafði
raunar tekið eftir því að margir
eiga erfitt með að halda
ákveðnum sérhljóðum hæfilega
löngum og tvöfalda gjarnan
samhljóðana í staðinn. Sjúk-
lingur getur þannig orðið að
„sjúkklingi" og skurðlæknir að
„skurrlakkni.“ Gaman væri að
heyra um fleira sem betur mætti
fara.
Bacterial vaginosis
Nýlega fékk undirritaður það
verkefni frá Félagi íslenskra
fæðinga- og kvensjúkdóma-
lækna að koma með tillögu að
íslenskun fræðiheitisins bacteri-
al vaginosis. Erindinu var svar-
að bréflega og skal úrvinnsla
þess nú rakin.
Skilgreining
Mikilvægt er að skilgreina
þau hugtök sem gefa á íslensk
fræðiheiti. Skilgreiningin á að
tryggja að viðkomandi hugtak
sé rétt afmarkað frá öðrum
skyldum fyrirbærum og að hið
íslenska heiti þess sé ekki byggt
á misskilningi. I þessu tilviki
fylgdi erindinu stutt skilgreining
sem var síðan endurskoðuð og
að lokum orðuð svo: „Bacterial
vaginosis er sjúklegt ástand,
fremur en sjúkdómur, sem ein-
kennist aftruflun á örverugróðri
í leggöngum (skeið), þrálátum
ofvexti ákveðinna baktería og
útferð sem er ríkuleg, þunn og
jöfn. Við skoðun sést ekki bólga
í skeiðarslímhúð, en útferðin er
oft lyktandi. “
lækna 60
Söguskoðun
Fyrrum voru oft notuð heitin
colpitis eða vaginitis hjá konum
með óeðlilega útferð af þessu
tagi og var útferðin upphaflega
talin stafa af sýkingu ineð loft-
óháðum (anerobic) sýklum. Ár-
ið 1954 fannst ný baktería sem
fékk heitið Hemophilus vagin-
alis og var talin orsök sýkingar-
innar. Þessi baktería fékk tví-
vegis ný nöfn, fyrst Coryne-
bacterium vaginale (1963) og
síðan Gardnerella vaginalis
(1980). Nú er talið víst að ekki
sé um eiginlega innrás sýkla eða
teljandi bólgufrumuíferð í
skeiðarslímhúð að ræða, en að
ofvöxtur þessarar bakteríu út-
rými þeim sýklum sem þarna
búa venjulega, einkum
Lactobacillus vaginalis. Líklegt
er þó talið að ofvöxtur fleiri
sýkla geti skipt máli. Á síðasta
áratug hefur heitið vaginosis átt
fylgi að fagna, ýmist í samsetn-
ingunni non-specific vaginosis
eða sem bacterial vaginosis.
Orðskýringar
Bacterium (ft. bacteria) nefn-
ist ýmist gerill eða baktería á
íslensku. Orðið er grískt að
uppruna, myndað af baktron,
sem þýðir stafur eða prik, en
bakterion mun vera smækkun-
arorð og þýðir þá lítill stafur.
Staflaga örverur hafa greinilega
verið fyrstu sýklarnir sem
greindust við smásjárskoðun.
Undanfarið virðist heitið bakt-
ería hafa átt meira fylgi að fagna
en gerill í fræðilegri umræðu
meðal lækna, en heitið gerill
hefur meir verið notað í mat-
vælafræði og heilbrigðisfræði.
Bakteríur eru örsmáar lífverur
(um 1 míkron í þvermál) sem
ýmist lifa sjálfstæðu lífi eða sem
sníklar á öðrum lífverum. Sýkill
er hins vegar örvera (microorg-
anismus) sem getur valdið sýk-
ingu í lifandi vef. Sýkill er því
samheiti á meinvirkum örver-
um, það er bakteríum, veirum,
sveppum, og sníkjudýrum.
Orðhlutinn -osis er viðliður
úr grísku, notaður til að tákna
líkamlegt eða andlegt ástand
sem gjarnan er sjúklegt (leuko-
cytosis, neurosis, virosis). Heit-
ið vaginosis má því vel nota um
sjúklegt ástand í leggöngum
(skeið). Islenskir orðasmiðir
hafa stundum átt í erfiðleikum
með að finna sambærilega stutt-
an og lipran viðlið, sem nái til
þess sem gríski orðhlutinn -osis
getur gefið til kynna, en oft hef-
ur verið gripið til þess að mynda
kvenkynsorð sem endar á -un,
svo sem eitrun (toxicosis).
Bacteriosis er skilgreint sem
sýking eða sjúkdómur af völd-
um baktería og hefur fen|ið
þýðinguna bakteríukvilli í Ið-
orðasafni lækna. Það heiti er þó
fremur stirðlegt í samsetning-
um. I tannlæknisfræði hefur ör-
verugróður sá sem býr í munn-
holi fengið samheitið munn-
sýkla, þó að slíkt sé ekki
fyllilega rökrétt á eðlilegum ör-
verugróðri. Það virðist hins veg-
ar vel við hæfi að heitið sýklun
feli í sér sjúklegt ástand sem
stafar af örverugróðri, til dæmis
bacteriosis. Vissulega má þó
segja að sýklun sé víðfeðmara
hugtak en bacteriosis og geti
náð til annarra sýkla en bakter-
ía. Rétt er að geta þess að með
fullum rétti mætti nota heitið
sýklun um landnám sýkla á
ákveðnum stöðum, til dæmis í
munni, görnum eða skeið.
(framhald í næsta blaði)
Jóhann Heiðar Jóhannsson