Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
457
Breytingar á keðjukokka-
sýkingum af flokki A
Sjúkratilfelli: Undirhúðar- og vöðvafellisbólga
með drepi og
„streptococcal toxic shock syndrome”
Gunnar Þór Gunnarsson, Jón Þór Sverrisson
Revievv of Changes in Group A Streptococcal In-
fections
Case reports: Streptococcal toxic shock syndrome
and necrotizing fasciitis
Gunnarsson GÞ, Sverrisson JÞ
Læknablaðið 1995; 81: 457-68
In the last years there has been an increase in serious
invasive group A streptococcal infections. Necrotiz-
ing fasciitis is one of them. These infections have
mostly affected young and middle aged people with-
out known risk factors. The first symptoms are usu-
ally pain and influenza like symptoms and then fol-
lowing rapid deterioration with shock and multior-
gan failure. This has been called streptococcal toxic
shock syndrome (STSS). The literature on STSS and
necrotizing fasciitis is reviewed. Symptoms and signs
and treatment of STSS are discussed, as are theories
about increased pathogenicity of group A strepto-
coccus and pathogenesis of STSS. Increased patho-
genicity seems largely due to a combination of M
types 1 or 3 and streptococcal pyrogen exotoxin
(SPE) production. M proteins increase the patho-
genicity and SPE can cause shock and multiorgan
failure. Neutralising anti-M and anti-SPE antibodies
most likely protect against STSS. Two cases are
reviewed, both young men with invasive group A
streptococcal infections, serotype M-l. One devel-
oped STSS and died in three days the other devel-
oped an typical abscess and responded to therapy
with drainage and antibiotics.
Ágrip
A síðustu árum hefur alvarlegum sýkingum
vegna keðjukokka af flokki A fjölgað. Ein
Frá lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Fyrirspurnir, bréfaskriftir: Gunnar Þór Gunnarsson, Ljung-
kullen 42, 433 66 Sávedalen, Sverige. Sími: (46) 31-26 67
54.
Lykilorð: Streptococcal toxic shock syndrome, fasciitis
necroticans, keðjukokkar af flokki A, streptococcal pyrogen
exotoxin.
þeirra er fasciitis necroticans (undirhúðar- og
vöðvafellisbólga með drepi). Þessar alvarlegu
sýkingar verða oftast hjá ungu og hraustu fólki
sem veikist með flensulíkum einkennum í
fyrstu og fer síðan snögglega í lost og fjölkerfa-
bilun. Þetta ástand hefur verið kallað strept-
ococcal toxic shock syndrome (STSS). Helstu
einkennum og teiknum STSS er lýst. Fjallað er
um breytingar á sýkingum vegna keðjukokka
af flokki A í sögulegu samhengi, hugmyndir
um meingerð STSS, ástæður aukinnar mein-
virkni keðjukokka af flokki A og meðferð.
Aukin meinvirkni keðjukokka af flokki A virð-
ist helst stafa af óhagstæðri samsetningu M-
prótína ( aðallega M-1 og M-3) og streptococcal
pyrogen exotoxina (SPE) hjá sama bakteríu-
stofni. M-prótín auka meinvirkni baktería og
SPE eru talin í lykilhlutverki hvað varðar lost
og fjölkerfabilun. Hlutleysandi mótefni gegn
M-prótínum og SPE minnka líkurnar á alvar-
legri sýkingu. Sérstaklega er fjallað um fasciitis
necroticans. Lýst er tveimur tilfellum ífarandi
sýkinga af völdum keðjukokka af flokki A hjá
ungum mönnum á svipuðum aldri. Báðir sýkt-
ust af keðjukokkum af flokki A af M-1 stofni.
Annar fékk STSS og lést þremur dögum síðar
hinn fékk „venjulega“ graftarsýkingu sem
svaraði vel hefðbundinni meðferð.
Sögulegt yfírlit
Á seinnihluta síðustu aldar og fyrrihluta
þessarar var mikið um alvarlegar sýkingar af
völdum keðjukokka af flokki A. Ifarandi sýk-
ingar voru algengar til dæmis barnsfararsótt,
blóðsýkingar, lungnabólgur, heilahimnubólg-
ur, vöðvaígerðir, fasciitis necroticans (undir-
húðar- og vöðvafellisbólga með drepi) og fleiri
mjúkvefjasýkingar. Gigtsótt (febris rheuma-
tica) og nýrnahnoðrabólga (glomerulonephrit-
is) voru mun algengari en nú. Skarlatssótt var