Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
465
hita og magapest nokkrum dögum áður. Hann
leitaði á lyfjadeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri seinnipart dags. Hafði verið slæmur
af verk allan daginn, slappur og lítið borðað.
Við skoðun fundust tveir vægt stækkaðir
eitlar í hægri holhönd og væg þreifieymsli þar.
Virkar hreyfingar um öxlina voru sársaukafull-
ar en ekki hlutlausar hreyfingar. Enginn roði,
hiti, bólga eða önnur fyrirferðaraukning fannst
í holhöndinni og var hún jafndjúp þeirri vinstri.
Engin bólga var á hægri handlegg eða merki
um hindrun á flæði um bláæðar eða slagæðar.
Lítið (5mm) þurrt sár var á hægri löngutöng án
sýkingarmerkja. Vægt stækkaðir eitlar í nár-
um. Vægur roði á gómbogum. Við hjartahlust-
un heyrðist lágt slagbilsóhljóð. Blóðþrýstingur
var 95/60 og púls 78. Líkamsskoðun annars
eðlileg og verkjakvartanir í ósamræmi við
eymsli og annað sem fannst við skoðun. Hiti
var 37,4°C.
Blóðrannsóknir teknar kl. 17.30 sýndu hvít-
blóðkorn 5,4, hemóglóbín 164, blóðflögur 129,
CRP 99. Kreatínín var 121, Na 136, K 3,4 og
sökk 1 en þær mælingar bárust daginn eftir
(tafla IV). Deilitalning framkvæmd daginn eft-
ir sýndi 95,4% hlutleysiskyrninga (neutro-
phils) en enga stafi. Sjúklingur fékk verkjastíla
sem slógu að hluta á verkinn. Hann var sendur
heim og beðinn að hafa samband ef einkenni
versnuðu aftur. Hann kom aftur um miðnætti
með slæma verki eins og áður. Hann var hita-
laus og skoðun eins og fyrr um kvöldið. Svaf
slitrótt um nóttina með hjálp verkjalyfja.
Klukkan sjö morguninn eftir var hann hitalaus
og engar breytingar fundust frá fyrri skoðunum
en kvartanir voru eins. Við skoðun kl. 8.30
kom í ljós aukin fylling í hægri holhönd og ofan
við hægra viðbein. Tekin var tölvusneiðmynd
Mynd2. Tölvusneiðmyndaf holhöndum. Gerð skömmu eftir
að fyrstu sýkingarteikn komu fram. örin bendir á bólgu í
fitunni í hœgri holhönd. Engin merki um graftrarígerð.
sem sýndi stækkaða eitla í hægri holhönd og
bólgu þar (mynd 2). Bláæðamynd með skugga-
efni og ómskoðun af slagæðum í holhönd
sýndu ekki merki um flæðishindrun. Blóðpruf-
ur teknar þá sýndu hvítblóðkorn 2,2, blóðflög-
ur 90 og CRP 314. Skömmu eftir hádegi var
sjúklingur orðinn illa áttaður og lækkaði í súr-
efnismettun. Hann fluttist á gjörgæslu þar sem
strax var hafin full stuðningsmeðferð og með-
ferð með breiðvirkum sýklalyfjum. Við ísetn-
ingu á barkarennu sást mikill roði og bólga á
gómbogum og í munnkoki. Um miðjan dag var
hann kominn í fjölkerfabilun með dreifðri
blóðstorku sem ekki varð snúið við með stuðn-
ingsmeðferð. Sólarhring eftir innlögn kom
fram lítill dökkur blettur í hægri holhönd. Á
næstu tveimur sólarhringum breiddust húð-
breytingar niður hægri síðu (mynd 3). Hann
fékk dreifð rauðleit útbrot og mikinn bjúg um
allan líkamann. Tveimur sólarhringum eftir
Tafla IV. Helstu rannsóknarniðurstöður tilfellis 1.
Fyrsti dagur Annar dagur Annar dagur
17:30 11:45 16:00
HBK þús/l 6,2 2,2 1,4
Hgb g/1 166 179 166
Blóöflögur þús/l 129 96 91
Sökk mm/klst 1 1
Na mmól/l 136* 131
K mmól/l 6,4* 3,7
Kreatínín nmól/l 121*
CRP Annað mg/l 99 314 Öndunarbilun Lifrarbilun DIC
* Mælt daginn eftir