Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.1995, Qupperneq 41

Læknablaðið - 15.06.1995, Qupperneq 41
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 485 ingur hans lækki (4). Síðasttalda kenningin hefur verið allnokkuð könnuð, en niðurstöður eru misvísandi þar sem LESP er ýmist sagður hækka (5-7), lækka (4) eða haldast óbreyttur (8) eftir kaffineyslu. Kaffi er efnafræðilega flókið. Það inniheldur mörg virk efni, ýmis næringarefni, ilmefni og beiskjuefni (alkaloid) eins og xantín (9). Helsta metýlxantínið er koffín sem í hreinu formi er sagt annað hvort auka (7) eða hafa óveruleg áhrif á LESP (5,10). Á hinn bóginn er talið að koffínsnautt kaffi, sem inniheldur metýlxantín önnur en koffín, auki (5) eða hafi engin áhrif á LESP (7). Ennfremur er sagt að súkkulaði, sem inniheldur koffín og teófylla- mín (sem einnig er í litlu magni í kaffi) lækki LESP (11-13). Þessar misvísandi og ólíku niðurstöður gætu að stórum hluta verið vegna aðferðarfræði- legra vandamála (14). Pær gætu líka tengst mis- munandi efnafræðilegri samsetningu kaffi- drykkjarins. Kaffibaunir eru mismunandi eftir því hvaðan þær koma, frá hvaða landi eða jafnvel landsvæði, auk þess sem brennsla þeirra og allur framleiðslumáti kaffis er breyti- legur (9). Markmið rannsóknarinnar var að athuga á ný áhrif algengra kaffi- og tedrykkja á starf- semi LES. LESP var mældur með ílöngum belg eða svokölluðum slíðurþrýstingsnema sem hefur ákveðna kosti ef mæla á LESP stöð- ugt (15). Slíkri aðferð hefur ekki verið beitt áður í rannsóknum á þessum drykkjum. Öfugt við fyrri rannsóknir mældum við samhliða sýrustig, pH, í neðsta hluta vélinda. Þessari viðurkenndu rannsóknaraðferð hefur lítt verið beitt á þessu sviði þó hún sé mjög næm og sértæk til greiningar á bakflæði (8,16). Við at- huguðum einnig áhrif tedrykkju, sem ekki hef- ur áður verið gert, en klínísk reynsla bendir til þess að te valdi síður bakflæðiseinkennum en kaffi. Aðferðir Þátttakendur: Tólf heilbrigðir sjálfboðaliðar (sjö konur, fimm karlar), 19-41 árs (meðalald- ur 29 ár) voru rannsakaðir. Þeir reyktu ekki, tóku engin lyf og höfðu ekki sögu um neina meltingarsjúkdóma. Rannsóknaráætlunin var samþykkt af siðanefnd Vermont háskóla. Skriflegt samþykki allra þátttakenda lá fyrir. Þrýstings- og pH mœling: Þátttakendur sneyddu hjá kaffi, tei, kakói, súkkulaði, kóla- drykkjum með koffíni og alkóhóli í 24 stundir og voru fastandi í að minnsta kosti fimm stund- ir fyrir hverja tilraun. Allir voru rannsakaðir fjórum sinnum með að minnsta kosti 48 stunda hvíld milli rannsókna. Til að mæla þrýsting var notuð grönn slanga með áföstum 6 cm löngum þrýstingsnema, svokölluðu Dent slíðri eða belg (þvermál 4,5 mm, Arndorfer Medical Special- ities Co., Greenfield, WI, USA). Slöngunni var rennt niður kokið og staðsett þannig, að op við efri brún slíðursins nam þrýsting í vélinda en op við neðri brún þrýsting í maga. Þannig var öruggt að slíðrið væri inni í LES. PH elekt- róða (þvermál 1,4 mm, Microelectrodes Inc., Londonderry, NH, USA) var fest við þrýst- ingsmælingarslönguna þannig að endinn var 3,5 cm ofan við slíðrið. Stöðugt vatnsrennsli var um þrýstingsnemann meðan á mælingum stóð, um það bil 0,6 ml/mín, stjórnað af sér- stakri dælu (Pneumo-hydraulic capillary infu- sion system, Arndorfer Medical Specialities Co.). LESP var numinn af ytri skynjara (P327-I; Bell and Howell, Pasadena, Ca, USA) og skráður stöðugt með fjölrása tæki (Gilson Medical Electronics Inc., Middleton, WI, USA). Samtímis og stöðugt var pH skráð af pH mæli (Beckman Instruments, Inc., Irvine, Ca, USA). Eftir 20 mínútna grunnmælingu var tilraunarlausninni dælt beint um slönguna inn í magann og síðan mælt stöðugt næstu 90 mínút- ur. Þrýstingur í maga var mældur í byrjun og í lok hverrar meðferðar. Tilraunarlausnirnar voru gefnar tilviljunarkennt samkvæmt a bal- anced latin design (17). Þátttakendur vissu aldrei hvaða blöndu þeir fengu hverju sinni. Heildarrúmmál tilraunarlausnanna var 350 ml. Helmingur þeirra var síaður appelsínu- drykkur (Minute Maid, Coca Cola Foods, Houston, TX, USA) en hinn helmingurinn einhver eftirtalinna lausna: 1) Vatn sem við- miðun (water=W), 2) venjulegt koffínríkt duftkaffi (instant), 5,0 gr. kyrnis (coffee=C), (Classic Nescafé, White Plains, NY, USA), 3) koffínsnautt duftkaffi, 5,0 gr. kyrnis (decaf- feinated coffee= D) (Decaf, Nescafé) og 4) venjulegt te, fjórir tepokar (tea=T) (T.J. Lipt- on Inc., Englewood Cliffs, NJ, USA). Teið var lagað þannig að það hafði svipað magn koffíns og venjulegt kaffi (C), 160 mg. Koffínmagnið var talið samsvara þremur kaffibollum. Lausn- irnar voru við stofuhita. Appelsínusafinn var
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.