Læknablaðið - 15.06.1995, Side 42
486
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
notaður til að gera blöndurnar tiltölulega súr-
ar, en fyrir notkun var pH gildi þeirra aðlagað
3 með saltsýru. Þannig var auðvelt að greina
bakflæði með pH mæli.
Allar mælingar voru merktar og lesnar blint.
LES þrýstingur var mældur í mmHg. Hann var
ákveðinn í lok útöndunar með því að nota
meðal magaþrýsting í byrjun og lok tilraunar
sem viðmiðunar núllgildi. LESP var samhæfð-
ur fyrir hvert 10 mínútna tímabil, en þannig
fékkst röð tímaháðra þrýstingsmælinga fyrir
hverja meðferð. LESP mælingar eftir meðferð
voru leiðréttar (corrected) með því að draga
frá grunnþrýsting (baseline) LES í sömu til-
raun. Við túlkun á pH gögnum var pH undir
fjórum talið vera merki um bakflæði. Umfang
bakflæðis var metið bæði með því að athuga
hversu oft það átti sér stað og hve lengi pH
undir fjórum varði.
Tölfrœðileg úrvinnsla: Notaður var 90 mín-
útna tilraunatíma af meðal leiðréttum LESP til
að kanna áhrif meðferðar og tímabils og yfir-
færð (carryover) áhrif. Þetta var gert með
greiningartækni á dreifni (variance) (17). Bon-
ferroni skilmerki fyrir fjölþættum samanburði
voru notuð til að finna mun á meðferðum.
Áhrif tíma á leiðréttar LESP mælingar voru
prófaðar með endurtekinni athugun á dreifni
og Greenhouse-Geisser líkindi metin.
Friedmann stikalaus (nonparametric) tví-
hliða greining á dreifni, leiðrétt fyrir jafnar
Table I. “Corrected” lower esophageal sphincter pressure
(mmHg).
Treatment Mean’’ SEM
c -2.583 1.428
D 2.028 2.138
T -0.824'"’ 1.276
W 4.870 1.837
C: regular coffee; C ): decaffeinated coffee; 1 ': tea; W: water.
A negative value indicates a decrease from baseline and a positive one
an increase.
"I Significantly different from treatment W (Bonferroni, p<0.05).
LESP Change (mmHg)
Fig.: Mean change in lower esophageal sphincter pressure
(LESP) from average baseline after treatment with regular
coffee (C), decaffeinated coffee (D), tea (T) and water (W).
tölur, var notuð til að meta áhrif meðferðar á
pH (18). Fjölþátta samanburður, grundvallað-
ur á Friedmann summum sætistalna (rank
sums), var notaður til að finna mismun á áhrif-
um einstakra meðferða á pH. Allt tölfræðilegt
mat miðaði við 0,05 marktækni.
Niðurstöður
LESP: Tafla I sýnir meðal og staðlað frávik
á meðal LESP breytingu („leiðréttri") miðað
við grunngildi fyrir alla 12 þátttakendur í 90
mínútur eftir að meðferð er veitt. LESP hækk-
aði að meðaltali um 2,028 mmHg miðað við
grunngildi eftir meðferð D og að meðaltali
4,870 mmHg við meðferð W. Hann lækkaði að
meðaltali um 2,583 mmHg við meðferð C og
0,824 við meðferð T. Greining á dreifni grund-
völluð á meðal LESP breytingum bendir til
þess að greind meðferðaráhrif séu raunveruleg
(p <0,001). Engin áhrif einstakra tímabila
(p=0,57) eða yfirfærð áhrif (p=0,12) fundust.
Paraður samanburður á áhrifum meðferðar
með notkun á Bonferroni skilmerkjum bendir
til þess að svörun við meðferð W sé marktæk
Table II. Post-treatment lower esophageal pH measurements.
Number of reflux episodes Percentaqe of time when pH was <4
Treatment Mean SEM Mean rank’’ Mean SEM Mean rank’’
c 1.17 0.46 2.7 1.60 0.72 2.9
D 0.92 0.74 1.8 1.10 0.69 1.9
T 2.08 0.90 3.6 ”> 3.19 1.97 3.3
W 0.33 0.19 1.9 0.39 0.20 1.9
'] Mean ranks are based on eight subjects: C: regular coffee; D: decaffeinated coffee; T: tea; W: water.
’’ Significantly different from treatments D and W (overall p<0.05).