Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 51

Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 51
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 493 Páll Torfi Önundarson Hugleiðingar um grundvallarsiðfræði og miðstýringu lækninga Ýmsar leiðir eru mögulegar til stýringar á útgjöldum vegna læknishjálpar. Góð sátt hefur ríkt um núverandi kerfi, sem byggir á hlutfallsgreiðslum fyrir verk sérfræðinga, en þau eru sjúklingum dýrari en verk heilsugæslulækna þar sem sjúk- lingar greiða miklu lægra fast gjald. Hlutfallsgreiðslukerfinu var komið á án þess að sjúkling- ar eða sérfræðingar teldu ástæðu til mótmæla, þótt jafn- ræði sé ekki með öllum læknum í því kerfi. Á undanförnum misserum hafa hins vegar önnur stjórntæki verið í deiglunni sem hafa það að markmiði að draga enn frekar úr „sérfræðings- kostnaði“ enda þótt fyrir liggi að kostnaður vegna sérfræði- þjónustu utan sjúkrahúsa sé lág- ur á íslandi, miðað við sambæri- leg lönd eða aðeins um 4% af heildarkostnaði heilbrigðis- þjónustunnar. Samtímis hefur uppbygging ríkisrekinna lands- byggðarsjúkrahúsa og heilsu- gæslustöðva haldið áfram og til- kostnaður aukist. Ljóst er að þörf er á umræðu innan lækna- samtakanna um raunhæfar sparnaðarleiðir og markmið. Tilvísanaskylda Alvarleg átök hafa orðið á undanförnum mánuðum vegna setningar reglugerðar um tilvís- anaskyldu án samráðs við heild- arsamtök lækna. Hugmynda- fræði reglugerðarinnar orkar enda siðfræðilega og lögfræði- lega tvímælis vegna brota á grundvallaratriðum eins og jafnræðisreglu og meðalhófs- reglu auk þess sem framkvæmd hennar væri brot á samkeppnis- lögum og stjórnsýslulögum. Þótt framkvæmd tilvísanareglu- gerðarinnar hafi verið frestað gefur hún tilefni til þess, að læknar hristi upp í grundvallar- siðfræði stéttarinnar um sam- band læknis og sjúklings, ekki síst í ljósi þess að markmið við- semjanda lækna eru ekki ætíð í anda aldalangrar siðfræðihefð- ar læknastéttarinnar. Kvótakerfi Ein sparnaðarhugmyndin er „kvótakerfi á lækningar" (total budget), sem sumir læknar virð- ast ljá máls á, en að mati höf- undar þessarar greinar eru kvótahugmyndir ekki eðlilegar í ljósi grundvallarsiðfræði lækna og ekki í samræmi við jafnræðis- reglur og samkeppnislög fremur en tilvísanaskylda. Hugmynda- fræði kvótakerfis á lækningum líkist mjög fiskveiðikvótakerfi Islendinga, sem er líklega orsök mesta misréttis nútímasögunn- ar og tvímælalaust brot á öllum jafnræðislögum, meðalhófs- reglum og samkeppnislögum. Kvótahugmyndir viðsemj- anda lækna ganga út á það, að í samningum verði skilgreind ákveðin „stofnstærð“ verka sem unnin verði af sérfræðingum á samningi við Tryggingastofnun ríksins. Markmiðið er að stöðva „sjálfvirka útgjaldaaukningu ríkissjóðs". Útfærslan er ennþá nokkuð á huldu en hugmyndir eru meðal annars uppi um há- markskvóta verka sem einstak- ur læknir megi sinna eða há- marksfjölda lækna sem fái að- gang að kvótanum. Þegar kvótinn verður fullnýttur fáist ekki meiri greiðslur úr trygg- ingasjóðnum fyrir greiningu, meðferð og eftirlit og eftir það greiði sjúklingar sjálfir fyrir þjónustu lækna eða þeim verði sinnt annars staðar. Um samskipti læknis og sjúklings Þau grundvallarsjónarmið sem hafa verður í heiðri við ástundun lækninga og samninga um greiðslur fyrir þær eru eftir- talin: 1. Sjúklingur leitar sér læknis; sjúklingur leitar sér ekki stofnunar. Sjúklingurinn óskar eftir því að læknir ger- ist gæslumaður heilsufars- legra hagsmuna sinna, áþekkt starfandi lögmönn- um sem taka að sér að gæta réttarfarslegra hagsmuna einstaklinga. 2. Augljós ályktun af fyrsta liðnum er að læknar vinna fyrst og fremst fyrir sjúk- linga (og/eða aðra lækna í ráðgefandi hlutverki). Sam- kvæmt því má læknir aldrei

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.