Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 60

Læknablaðið - 15.06.1995, Page 60
(flúoxetín) -árangursríkt íslenskt geðlyf Seról (flúoxetín) Framleiðandi: OMEGA FARMA hf. Kársnesbraut 108. 200 Kópavogur. Töflur; N 06 A B 03. Hver tafla inniheldur: Fluoxetinum INN, klórlð, samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg. Hylki; N06AB 03. Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klórlö, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geð- deyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda I heila. Lyfið hefur lítil sem engin áhrifá noradrenalin eða önnur boðefni i heila. Flúoxetin minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetins í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetín og helmingunartími þess er 7-9 dagar. Próteinbinding I plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út iþvagi. að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábending- ar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandiþunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábend- ingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrar- sjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist i byrjun meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki. niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kviði, sljóleiki, munnþurkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO- hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að tökuþess erhætt, erekkióhætt að nota MAO-hemjandilyffyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur fráþvitöku flúexetíns er hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtimis gjöf af flúoxetiniog þarfþvíað fylgjast vel með litíummagni íblóði. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Við mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframlelðslu, stofnað 1990 x Pakkningar: Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk. Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.