Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 62

Læknablaðið - 15.06.1995, Síða 62
502 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Ársskýrsla Öldungadeildar Læknafélags íslands 1995 Aðalfundur Öldunga- deildar LÍ 1995 var haldinn 23. maí. A fundinum flutti formaður, Arni Björnsson, ársskýrslu um starf deildar- innar. í upphafi minntist formaður látinna félaga á árinu, þeirra Björns Júlíussonar, Þórarins Guðnasonar og Þóroddar Jón- assonar. Skýrsla formanns fer hér á eftir: „Nú er liðið rúmt ár síðan Öldungadeild LÍ var stofnuð. Á stofnfundinum kom þegar í ljós mikill áhugi á félagsskapnum og virðist að minnsta kosti talsvert af áhuganum vera enn vakandi, þó mæting á fundum hafi ekki verið jafn góð á seinni hluta starfsársins og í byrjun þess. Á stofnfundi 5. maí 1994 mættu 62 læknar, auk formanns og framkvæmdastjóra LI, nú eru félagsmenn orðnir 89 tals- ins. Á árinu hafa verið haldnir þrír almennir fundir, þar af einn með fulltrúum frá Félagi ungra lækna. Á fundunum hafa verið rædd ýmis mál er sérlega varða aldraða lækna, svo sem lífeyris- mál og lánamál og á fundinum með unglæknum voru rædd við- horf þessara hópa lækna hvors til annars. Unglæknar ráðgera að boða aldraða lækna til fund- ar á hausti komanda. Einn skemmtifundur var haldinn fyrir áramót á Lækjar- brekku undir stjórn formanns skemmtinefndar Sigurðar Þ. Guðmundssonar. Sá fundur þótti takast með ágætum og bíða menn nú eftir fleiri slíkum. Þá hefur fræðslunefndin undir ötulli stjórn Tómasar Á. Jónas- sonar staðið fyrir tveimur fræðslufundum. Sá fyrri var í boði Krabbameinsfélags Is- lands og hinn síðari í boði Til- raunastöðvarinnar að Keldum. Fundirnir voru mjög skemmti- legir og fróðlegir og fóru menn heim margs vísari um starfsemi þessara merku stofnana. Áformað er að fræðslunefndin skipuleggi fleiri slíka fundi á komandi starfsári. Haldnir hafa verið sex stjórn- arfundir og hafa þar verið rædd ýmis mál er varða félagið og fé- lagsmenn. Lífeyrismálin hafa verið ofarlega á baugi og þá sér- lega möguleikar á að lagfæra kjör þeirra, sem hafa fengið líf- eyri á undanförnum árum og verða lífeyrisþegar á næstu ár- um. Mál þessi hafa verið rædd óformlega við stjórn Lífeyris- sjóðs lækna og stjórnarmenn læknafélaganna. Áþreifanlegur árangur hefur verið lítill, þó voru lífeyrisgreiðslur hækkaðar um 10 af 100 um síðustu áramót vegna góðrar fjárhagsstöðu sjóðsins. Á formannaráðstefnu LÍ sem haldin var 19. maí var samþykkt tillaga formanns Öld- ungadeildarinnar þess efnis að stjórn LÍ setti á stofn þriggja manna starfshóp til að skoða líf- eyrismál og á sá hópur að skila áliti á aðalfundi LÍ á hausti komanda. Kjaranefnd undir forystu Ás- mundar Brekkan gekkst ásamt formanni fyrir viðræðum við stjórn S.P.R.O.N. um sérstök viðskiptakjör fyrir félaga í Öld- ungadeildinni. Gengið var frá samningum, sem sendir hafa verið út til félagsmanna. Þegar litið er yfir félagsstarfið á þessu fyrsta ári, þá hefur það verið bærilega líflegt. Eins og bent var á í byrjun hefur þó verulega dregið úr fundarsókn frá fyrstu byrjun. Hugsanlega er það eðlilegt, en það er líka hugsanlegt, að stjórnin hafi ekki haldið nógu vel á spöðunum við að halda félagsstarfinu lifandi. Því hafi væntingar, sem greina mátti við fyrsta áhuga, dvínað. Eina leiðin til að komast að raun um það er að félagsmenn tjái sig, en mér hefur fundist að jafnvel þeir, sem að minnsta kosti áður fyrr létu í sér heyra, hafi verið óþarflega þögulir. Hvað hefur þá tekist á þessu fyrsta ári og hvað hefur ekki tekist nógu vel? Öldungadeildin er orðin við- urkennd deild innan LÍ og hefur þar með fengið fulltrúa á aðal- fundi þess. Þannig hafa aldraðir læknar, sem við starfslok hafa nánast orðið „týnda kynslóðin“ komið fram í dagsljósið. Margir þessara lækna, sumir háaldrað- ir, eru enn starfandi við lækn- ingar, vegna þess hve ellilífeyrir þeirra er lítill. Það eru hags- munir allra lækna að lagfæra þetta og það er hluti af góðri ímynd stéttarinnar að aldraðir læknar geti hætt störfum með fullri reisn. Öldungadeildin hefur náð nokkuð hagstæðum samningum við virta lánastofnun fyrir þá einstaklinga, sem kjósa að búa í húsum sínum eftir starfslok. Þessir samningar gefa mönnum

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.