Læknablaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 41
MÓNÍT-L
(ísósorbíð mónónítrat)
-forðalyf við hjartaöng einu sinni á dag.
Mónít-L (ísósorbíö mónónítrat)
Framleiöandi: OMEGA FARMA hf.. Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur.
Foróahylki; C 01 D A 14. Hvert foröahylki inniheldur: Isosorbidi mononitras
INN 30 mg eða 60 mg. Eiginleikar: Ísósorbíö mónónítrat er virkt umbrotsefni
ísósorbíö dínítrats. Þaö slakar á sléttum vöövum æöa, aöallega í bláæðum, minnkar
þannig flæöi til hjartans og þar með hjartastærö og auðveldar samdrátt hjartans. Lyfið
hefur einnig bein útvíkkandi áhrif á kransæðarnar. Aðgengi lyfsins er um 90%.
Blóöþéttni nær hámarki eftir 3-4 klst. og eftir 12 klst. er þéttni ekki svo mikil aö þol
myndist. Helmingunartími er 4-8 klst. Umbrotnar í lifrinni og niöurbrotsefni útskiljast í
þvagi. Áhrif lyfsins vara í um 12 klst. Ábendingar: Hjartaöng, til að koma í veg fyrir
verk. Frábendingar: Lágur blóðþrýstingur, sérstaklega eftir hjartadrep. Mikiö
blóöleysi. Aukinn þrýstingur í miðtaugakerfi. Slagæðasjúkdómur í heila. Ofnæmi fyrir
nítrötum. Meöganga og brjóstagjöf: Öryggi lyfsins á meögöngu og viö brjóstagjöf
hefur ekki verið staðfest. Aukaverkanir: Höfuðverkur. Æðasláttur og roði. Lágur
blóöþrýstingur. Svimi. Yfirliö. Hraður hjartsláttur. Uppköst. Millivcrkanir: Áfengi
getur aukiö blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins. Varúö: Við brátt hjartadrep á aöeins
að nota lyfið undir mjög nákvæmu eftirliti. Skammtastæröir handa fullorönum:
í upphafi meðferðar er ráölagöur skammtur 30 mg á dag. Venjulegur skammtur er 60
mg á dag, gefið að morgni. Ef þörf krefur má auka skammt í 120 mg á dag sem taka
skal í einum skammti að morgni. Vegna hættu á myndun þols viö
langvarandi notkun nitrata er óráölcgt aö nota nitröt samfleytt meira
en 12 klst. í hvcrjum sólarhring. Lyfiö er ekki ætlaö börnum.
Pakknlngar:
Foröahylki 30 mg: 30 stk.; 100 stk.
Foröahylki 60 mg: 30 stk.; 100 stk.
o
0MEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990