Læknablaðið - 15.06.1998, Page 3
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
455
LÆKNABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
6. tbl. 84. árg. Júní 1998
Útgefandi:
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Aðsetur:
Hlíðasmári 8, 200 Kópavogur
Netfang: icemed@icemed.is
Símar:
Skiptiborð: 564 4100
Lífeyrissjóður: 564 4102
Læknablaðið: 564 4104
Bréfsími (fax) 564 4106
Ritstjórn:
Emil Sigurðsson
Gunnar Sigurðsson
Hannes Petersen
Hróðmar Helgason
Reynir Arngrímsson
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Netfang: journal@icemed.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Birna Þórðardóttir
Netfang: birna@icemed.is
(Macintosh)
Auglýsingastjóri og ritari:
Ásta Jensdóttir
Netfang: asta@icemed.is
(PC)
Blaðamaður:
Þröstur Haraldsson
Netfang: throstur@icemed.is
(Macintosh)
Upplag: 1.500
Áskrift: 6.840,- m.vsk.
Lausasala: 684,- m/vsk.
© Læknablaðið, Hlíðasmára 8,
200 Kópavogur, sími 564 4104.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hiuta né í
heild án leyfis.
Prentun og bókband:
Prentsmiðjan Grafík hf.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Pökkun:
Plastpökkun, Skemmuvegi 8,
200 Kópavogur.
ISSN: 0023-7213
Fræðigreinar
Ritstjórnargrein: Ætisár. Ný viðhorf:
Bjarni Þjóðleifsson ............................. 459
Gallkaganir á Landspítalanum. Fyrstu 353 tilfellin:
Kristján Óskarsson, Margrét Oddsdóttir,
Jónas Magnússon ................................. 461
Síðla árs 1991 hófust gallkaganir á Landspítalanum. Rannsóknin
tekur til fyrstu þriggja áranna sem aðgerðirnar voru framkvæmdar.
á spítalanum og beinist meðal annars að tíðni fylgikvilla, aðgerðar-
og legutíma og hve fljótt sjúklingar ná fyrri færni eftir aðgerð. Nið-
urstaða höfunda er sú að þessi tækni eigi fullan rétt á sér og leiði
til dæmis til mikils sparnaðar bæði fyrir einstaklinga og samfélagið
vegna styttri legutíma og styttri fjarveru frá vinnu.
Rofsár á maga og skeifugörn vegna sársjúkdóms.
Sjúklingar á Landspítalanum 1989-1995:
Kristinn Eiríksson, Margrét Oddsdóttir,
Jónas Magnússon.................................... 466
Höfundar leitast við að skilgreina hvaða einstaklingar hafa fengið
meðferð á Landspítalanum vegna ofangreinds kvilla. Gerð er grein
fyrir fjölda aðgerða, dánartíðni og reynslu af þeim aðferðum sem
beitt er, bæði opnum aðgerðum og kviðsjáraðgerðum. Fyrsta kvið-
sjáraðgerð vegna rofsárs var gerð á Landspítalanum árið 1992 og
virðist stytta meðferðartíma.
Nýgengi illkynja mesóþelíóma á íslandi 1965-1995:
Vilhjálmur Rafnsson, Kristrún R. Benediktsdóttir..... 474
lllkynja mesóþelíóma er talin vísbending um asbestmengun. Á
ofangreindu árabili fundust 20 sjúklingar með vefjagreininguna ill-
kynja mesóþelíóma. Nýgengi hefur aukist síðustu 30 árin þó svo
að bann hafi verið sett við asbestinnflutningi og notkun árið 1983.
Mælingar á magni alnæmisveiru í plasma HIV
smitaðra á íslandi:
Gunnar Guðmundsson, Barbara Stanzeit, Haraldur Briem,
Hugrún Ríkarðsdóttir, Már Kristjánsson, Sigurður
Guðmundsson, Sigurður B. Þorsteinsson, Arthur Löve . 483
Auk mælinga á magni alnæmisveiru í plasma HIV smitaðra beind-
ist rannsóknin að því að meta áhrif nýrra lyfjasamsetninga á veiru-
magn í plasma og fjölda CD4+ frumna í blóði. Niðurstöður eru
meðal annars þær að breyting á veirumagni í kjölfar breytinga á
meðferð sé talsvert einstaklingsbundin, en dæmi eru um sjúklinga
þar sem fjöllyfjameðferð hefur aukið heilbrigði til muna.
Nýr doktor í geðlæknisfræði:
Ólafur Þór Ævarsson ........................ 490
Stofnfrumugræðlingar blóðmyndandi vefs:
Leiðrétting................................... 491